Golf

Áhorfandi handtekinn fyrir að kasta pylsu að Tiger Woods

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger í mótinu í dag.
Tiger í mótinu í dag. Nordic Photos / Getty Images
Tiger Woods virðist hafa náð sér þokklega á strik síðustu dagana en hann spilaði í dag á 68 höggum á Frys.com-mótinu á PGA-mótaröðinni, þriðja daginn í röð. Meiri athygli vakti þó að áhorfandi á mótinu var handtekinn fyrir að kasta pylsu í átt að kylfingnum.

Woods var að pútta þegar að atvikið átti sér stað. Pylsan sjálf hafnaði á flötinni en brauðið komst ekki svo langt. Woods púttaði eins og ekkert hefði í skorist.

Tiger er sem stendur í 28. sæti en síðust kylfingarnir eiga enn eftir að klára leik. Hann lék alls á 277 höggum og sjö höggum undir pari. Í gær tókst honum að spila annan daginn í röð undir 70 höggum og var það í fyrsta sinn sem það gerðist síðan í upphafi ársins.

Hann gerði enn betur í dag og virðist því vera að komast á gott skrið á nýjan leik. Hann vann síðast mót á PGA-mótaröðinni árið 2009 og risamót síðast fyrir þremur árum. Í vikunni féll hann svo úr hópi 50 efstu kylfinga á heimslistanum í fyrsta sinn síðan 1996.

Þegar þetta er skrifað hefur Bandaríkjamaðurinn Bryce Molder tveggja högga forystu á næstu kylfinga en mótinu lýkur í nótt. Fylgjast má með stöðunni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×