Golf

Tiger spilaði vel annan daginn í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods í mótinu í gær.
Tiger Woods í mótinu í gær. Nordic Photos / Getty Images
Tiger Woods lék þriðja hringinn á Frys.com-mótinu á PGA-mótaröðinni á 68 höggum í gær, rétt eins og hann gerði á öðrum keppnisdegi. Er það í fyrsta sinn síðan í upphafi ársins sem hann spilar undir 70 höggum tvo daga í röð.

Árangurinn dugar þó Woods ekki til að blanda sér í toppbaráttuna en hann er nú í 38. sæti ásamt fleiri kylfingum á fjórum höggum undir pari samanlagt.

Bandaríkjamaðurinn Briny Baird er í efsta sæti fyrir lokadaginn á þrettán höggum undir pari. Hann spilaði stórkostlega í gær og skilaði sér í hús á 64 höggum. Paul Casey frá Englandi og Suður-Afríkumaðurinn Ernie Els koma næstir á ellefu höggum undir pari.

Tiger er að spila á sínu fyrsta móti í sjö vikur en hann hefur verið frá vegna meiðsla. Hann vann síðast mót árið 2009 og hefur ekki unnið risamót í þrjú ár auk þess sem hann féll í vikunni úr hópi efstu 50 kylfinga á heimslistanum í fyrsta sinn í fimmtán ár.

„Þetta er allt að koma núna,“ sagði hann. „Ég er að bæta mig á hverjum degi sem er hið besta mál. Það er augljóst að ég þarf að spila mjög vel á morgun (í dag), bæta mig mjög mikið, pútta vel og ná virkilega lágu skori.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×