Golf

Tiger ánægður með að komast áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods í mótinu í gær.
Tiger Woods í mótinu í gær. Nordic Photos / Getty Images
Tiger Woods komst í gær í gegnum niðurskurðinn á móti í PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum í gær og var ánægður með þá niðurstöðu.

Hætta varð leik í gær vegna þoku en Tiger náði að klára sitt og lék vel - á alls 68 höggum eða þremur undir pari vallarins. Hann náði sér ekki á strik á fyrsta keppnisdeginum er hann spilaði á 73 höggum en var nógu góður í gær til að komast áfram.

Tiger hefur ekki unnið stórmót í golfi í þrjú ár og datt í vikunni í fyrsta sinn í fimmtán ár úr hópi efstu 50 kylfinga heims á heimslistanum.

Hann er nú að keppa á sínu fyrsta móti á PGA-mótaröðinni eftir sjö vikna fjarveru vegna meiðsla. Síðast lék hann á PGA-meistaramótinu í ágúst og komst þá ekki í gegnum niðurskurðinn.

„Þetta er alltaf í vinnslu hjá manni,“ sagði Tiger við fréttamenn í gær. „Maður verður að sinna vinnunni á æfingasvæðinu heima hjá sér, spila svo vel á mótum og reyna að ná eins langt og mögulegt er.“

„Ég er aldrei hrifinn af því að missa af niðurskurðinum. Það þýðir að maður á ekki möguleika á að vinna mótið. En þessa helgina á enn ég möguleika á sigri.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×