Golf

Keppir á PGA mótaröðinni þrátt fyrir tvær hjartaígræðslur

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Erik Compton er ekki þekktasti kylfingur heims en hann gæti átt eftir að stela athyglinni á PGA mótaröðinni á næsta keppnistímabili.
Erik Compton er ekki þekktasti kylfingur heims en hann gæti átt eftir að stela athyglinni á PGA mótaröðinni á næsta keppnistímabili. AP
Erik Compton er ekki þekktasti kylfingur heims en hann gæti átt eftir að stela athyglinni á PGA mótaröðinni á næsta keppnistímabili. Hinn 31 árs gamli Compton hefur tvívegis fengið nýtt hjarta grætt í sig og þrátt fyrir þá erfiðleika hefur hann tryggt sér keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð heims.

Compton endaði í hópi 25 efstu á peningalistan Nationwide mótaraðarinnar sem er nokkurs konar B-deild fyrir PGA mótaröðina. Og sá árangur tryggði honum keppnisrétt á meðal þeirra bestu.

Compton endaði í 13. sæti á peningalistanum en hann fór langt með að tryggja sér eitt af 25 efstu sætunum með því að sigra á móti í Mexíkó í júní. Alls fékk hann um 27 milljónir kr. í verðlaunafé á Nationwide mótaröðinni. Compton hefur verið vinsæll boðsgestur á PGA mótum á undanförnum misserum og alls hefur hann leikið á 30 PGA mótum. Hann hefur aldrei fyrr verið með keppnisrétt á mótaröðinni.

„Þetta er kraftaverk, það sem ég hef afrekað er ekkert annað en kraftaverk," sagði Compton sem á ættir að rekja til Noregs og er hann með tvöfalt ríkisfang. Bandarískt og norskt. Þegar hann var 12 ára gamall var nýtt hjarta grætt í hann og árið 2008 þurfti hann að fara í aðra slíka aðgerð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×