Golf

Birgir Leifur úr leik í úrtökumótaröð PGA

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Nordic Photos / Getty Images
Birgir Leifur Hafþórsson féll í dag úr leik á úrtökumótaröðinni fyrir bandarísku atvinnumótaröðina í golfi, PGA.

Birgir Leifur komst fyrstur Íslendinga á annað stig mótaraðarinnar sem hann keppti á nú um helgina. Þar endaði hann í 44.-50. sæti en efstu 20 komast áfram á þriðja og lokastig úrtökumótaraðarinnar.

Hann lék á 70 höggum í dag og samtals á einu höggi undir pari eftir keppnisdagana fjóra.

Fram kemur á kylfingi.is að Birgir Leifur ætli að reyna að koma sér á Evrópumótaröðina í golfi en hann á þátttökurétt á öðru stigi úrtökumótaraðarinnar sem fer fram síðar í mánuðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×