Golf

Bandaríkin enn í forystu og Tiger fékk loksins stig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods í Ástralíu í nótt.
Tiger Woods í Ástralíu í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Tiger Woods náði loksins stigi fyrir bandaríska liðið í Forsetabikarnum í golfi en að loknum þriðja keppnisdeginum hefur Bandaríkin fjögurra stiga forystum, 13-9.

Woods spilaði með Dustin Johnson í morgun og saman unnu þeir sigur á Adam Scott og KJ Choi þegar liðin mættust í fjórmenningi fyrri hluta dagsins. Þeir Woods og Johnson töpuðu hins vegar í fjórleiknum eftir hádegi fyrir þeim KT Kim og YE Yang.

Woods gekk þá skelfilega að pútta. Hann kom sér í fuglafæri á hverri einustu holu en missti alls níu pútt af fimm metra færi eða minna yfir hringinn.

Það kom þó ekki að sök fyrir bandaríska liðið sem þarf aðeins fjögur og hálft stig á lokadeginum til að tryggja sér titilinn. Þá verður keppt í einstaklingskeppni og eru viðureignirnar samtals tólf. Woods mætir þá Aaron Baddeley.

Ekki vantaði dramatíkina í nótt en Bandaríkjamaðurinn Hunter Mahan setti niður magnað pútt á sautjándu af sex metra færi. Jason Day var þá nýbúinn að setja niður litlu styttra pútt við mikinn fögnuð heimamanna. Mahan sá hins vegar við honum og tryggði sínum mönnum sigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×