Golf

Ískalt andrúmsloft þegar Tiger hitti Williams - myndasyrpa

Tiger Woods og Steve Williams voru helsta fréttaefnið á fyrsta keppnisdegi Forsetabikarsins.
Tiger Woods og Steve Williams voru helsta fréttaefnið á fyrsta keppnisdegi Forsetabikarsins. Getty Images / Nordic Photos
Tiger Woods byrjaði skelfilega í Forsetabikarnum í golfi sem hófst í nótt í Ástralíu.Hann tapaði 7/6 í fjórmenning þar sem hann lék með Steve Stricker. Steve Williams, fyrrum aðstoðarmaður Tigers, var í sama ráshóp en hann er kylfuberi hjá Ástralanum Adam Scott. Það er alveg ljóst að nærvera Williams hafði ekki góð áhrif á Woods en ljósmyndarar Getty Images fylgdust vel með þeim félögum - enda hefur andað köldu á milli Tiger og Williams að undanförnu. Í myndasyrpunni má sjá hvernig þeir brugðust við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×