Golf

Sigur Woods tryggði bandaríska liðinu Forsetabikarinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods fagnar sigrinum með áhorfendum í nótt.
Tiger Woods fagnar sigrinum með áhorfendum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Lið Bandaríkjanna vann í nótt Forsetabikarinn í golfi eftir sigur á heimsúrvalinu, 19-15. Á endanum var það sigur Tiger Woods sem tryggði bandaríska liðinu endanlega titilinn.

Tiger hafði betur gegn Aaron Baddeley og lenti ekki í teljandi vandræðum. Hann kláraði viðureignina á fimmtándu holu og gátu þá Bandaríkjamenn leyft sér að fagna sigrinum.

„Ég var nú að vona að þetta myndi ekki að ráðast á okkar viðureign,“ sagði Woods við fjölmiðla. „En okkur tókst ekki að byrja nægilega vel og við áttuðum okkur á því að líklega myndi þetta ráðast á síðustu fjórum viðureignunum.“

„Við þurftum að ná í stig og náði ég að spila virkilega vel í dag,“ bætti hann við.

Fred Couples, fyrirliði bandaríska liðsins, tók nokkuð umdeilda ákvörðun með því að velja Woods í liðið og skilja eftir kylfinga sem höfðu náð betri árangri en hann á undanförnu ári. En Woods stóð fyrir sínu á mótinu og spilaði vel, þrátt fyrir að aðeins tveir vinningar hafi skilað sér í hús á endanum.

Þetta var fjórði sigur Bandaríkjanna í röð í Forsetabikarnum og náðu þeir bandarísku að hefna fyrir eina tap liðsins í keppninni fyrir þetta - árið 1998 en þá fór einmitt líka fram í Melbourne.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×