HK-ingar eru komnir upp í annað sætið eftir þennan sigur.
Forysta gestaliðsins var fjögur mörk í hálfleik og virtist ekki útlit fyrir að áhorfendur myndu fá einhverja spennu í seinni hálfleiknum. Líkurnur minnkuðu enn frekar þegar HK skoraði tvö fyrstu mörk seinni hálfleiks. Annað átti þó eftir að koma á daginn.
Með frábærum kafla náðu heimamenn óvænt að minnka muninn í eitt mark og svo fékk einn besti leikmaður HK, Bjarki Már Elísson, að líta rauða spjaldið eftir viðskipti við Hilmar Stefánsson. Virtist Bjarki slá til Hilmars og fékk því rauða spjaldið.
Á ótrúlegan hátt hafði rauða spjaldið jákvæð áhrif á liðsfélaga Hilmars. HK-ingar settu í fluggírinn og skoruðu sex mörk í röð. Þessi kafli kláraði leikinn.
HK vann því skyldusigur enda einfaldlega með talsvert betra lið en Afturelding. Sóknarleikur Mosfellinga var oft tilviljanakenndur og staða þeirra í deildinni er einfaldlega þannig að þeirra barátta er gegn Gróttu um umspilssæti um að halda sér í deildinni. Liðin mætast einmitt í næstu umferð og verður fróðlegt að sjá hvernig sá leikur fer.
Erlingur: Jákvæð viðbrögð við rauða spjaldinu

„Við vissum að þetta yrði þolinmæðisvinna gegn Aftureldingu. Við náðum ágætis forystu í fyrri hálfleik. Varnarleikurinn var nokkuð sterkur og markvarslan mjög góð. Sigurinn liggur þar og í góðum baráttuanda þegar líða tók á leikinn."
Erlingur segir að sínir menn hafi brugðist eins vel við rauða spjaldinu á Bjarka og hægt var.
„Við snerum bökum saman og hugsuðum ekkert út í neikvæða punktinn. Menn voru fljótir að bregðast við og leikmennirnir eiga hrós skilið," sagði Erlingur sem mótmælir ekki dómnum.
„Ég sá þetta ekki alveg en hann var að reyna að losa sig og slær kannski frá sér. Þá er þetta bara rautt spjald. Ég treysti Antoni og Hlyni (dómurum leiksins) fyllilega til að meta þessa stöðu."
Davíð: Þetta verður rosalega erfitt

„Þetta var vægast sagt sveiflukenndur leikur. Við komum grimmir inn í þetta á milli en áttum svo til að missa þetta langt niður. Við þurfum að fækka þessum köflum," sagði Davíð.
„Það var mikil spenna í gangi þarna í seinni hálfleiknum og menn voru komnir með trú á að við gætum fengið eitthvað úr leiknum. Þá fórum við að missa boltann og botninn datt undan þessu. Það er erfitt að þurfa að rífa þetta alltaf aftur og aftur upp. Það er rosalega erfitt"
Gerir Afturelding sér grein fyrir því að staða þeirra í deildinni er þannig að þeirra barátta er bara gegn Gróttu?
„Ahhh... ég veit það ekki. Ég vil ekki meina það strax en þetta verður rosalega erfitt. Það verður erfitt að ná stigum en ég gef þessu fram að áramótum. Við eigum Gróttu heima næst og verðum að taka tvö stig þar."