Golf

Donald segist vanta risatitil

Donald með nafna sínum Önd.
Donald með nafna sínum Önd.
Besti kylfingur heims um þessar mundir, Luke Donald, er ekki fullkomlega sáttur þó svo hann hafi átt ótrúlegt ár á vellinum. Hann rakaði inn mestum peningum bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.

Donald á þó enn eftir að vinna risamót og telur að hann verði ekki fullkomlega viðurkenndur fyrr en honum tekst það.

"Það vantar svolítið upp á hjá mér þar sem ég er ekki búinn að vinna risatitil. Ég mun leggja hart að mér til þess að vinna einn slíkan á næsta ári," sagði Donald sem var valinn kylfingur ársins hjá PGA.

"Ég get alveg viðurkennt að ég öfunda þá sem hafa unnið risamót. Vonandi skilar þetta ár því að ég kunni betur að vinna með pressuna á risamótum í framtíðinni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×