Góður útisigur hjá Degi og Alexander Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. desember 2011 20:58 Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin. Nordic Photos / Getty Images
Füchse Berlin hélt uppteknum hætti í þýsku úrvalsdeildinni með góðum útisigri á Lemgo í kvöld, 31-27. Alexander Petersson skoraði sjö mörk fyrir Füchse Berlin og var markahæstur en Dagur Sigurðsson er þjálfari liðsins. Berlínarliðið er sem fyrr í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar en liðið er með 29 stig, þremur á eftir Kiel sem á leik til góða. Þessi lið mættust í bikarnum í síðustu viku og vann þá Kiel ellefu marka stórsigur. Nánast jafnt var á öllum tölum framan af í leiknum og staðan 15-14 fyrir Lemgo í hálfleik. Füchse Berlin náði þó að síga fram úr á síðasta stundarfjórðungnum og Alexander kom liðinu í þriggja marka forystu, 24-21, með glæsilegu marki þegar um ellefu mínútur voru til leiksloka. Það var hans sjötta mark í leiknum. Heimamenn neituðu þó að leggja árar í bát og náðu að minnka muninn í eitt mark, 27-26, þegar þrjár mínútur voru eftir. En eins og svo oft áður hjá Füchse Berlin í vetur kom Spánverjinn Iker Romero sterkur inn í lokin og jók forystuna aftur í tvö mörk í næstu sókn. Eftir það leit Berlínarliðið ekki til baka og Alexander tryggði liðinu endanlega sigur með sínu sjöunda marki í leiknum hálfri mínútu fyrir leikslok.
Þýski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Fleiri fréttir Í beinni: Crystal Palace - Man. Utd | Er United komið á rétta braut? Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Segir að Saliba og Gabriel séu besta miðvarðapar í Evrópu Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Sjá meira