Glæsileg þrenna Ronaldo sá um Villarreal Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2011 20:16 Kaka og Cristiano Ronaldo fagna í kvöld. Nordic Photos / AFP
Real Madrid vann í kvöld 4-2 sigur á Villarreal eftir að hafa tvívegis lent undir í leiknum. Cristiano Ronaldo fór á kostum en hann skoraði fyrstu þrjú mörk Real og lagði það fjórða upp fyrir Brasilíumanninn Kaka. Villarreal komst tvisvar yfir í fyrri hálfleik með mörkum Cani og Marco Ruben. En Ronaldo jafnaði metin í bæði skiptin. Í síðari hálfleik kom hann svo Real yfir með glæsilegu marki og innsiglaði hann þar með þrennuna. Kaka kom inn á sem varamaður í kvöld og var þetta fyrsti leikur hans á heimavelli á tímabilinu. Hann hélt upp á það með því að skora fjórða mark sinna manna, eftir sendingu frá Ronaldo. Leikurinn var stórskemmtilegur og var leikmönnum oft heitt í hamsi. Juan Carlos Garrido, stjóri Villarreal, var sendur af velli undir lok leiksins og þá ákvað Jose Mourinho, stjóri Real, að ógna gestunum með því að fagna fjórða marki sinna manna beint fyrir framan varamannaskýli Villarreal. Með sigrinum minnkaði Real forystu Barcelona á toppi deildarinnar aftur í tvö stig en liðin tvö eru með mikla yfirburði í deildinni. Villarreal er í þriðja sætinu, þrettán stigum á eftir Börsungum.
Spænski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti „Þetta er smá spooky“ Körfubolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Ronaldo lenti í hörkurifrildi í toppslagnum Mainoo áfram í Manchester næstu árin Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Írönum vísað úr landi fyrir ársþing FIFA Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Sjá meira