Dressmann og Rolling Stones í eina sæng 13. janúar 2011 09:04
Norska herrafatakeðjan Dressmann og hljómsveitin Rolling Stones hafa náð samkomulagi um samstarf sín í millum. Þar að auki hefur Dressmann látið hanna nýtt lógó og ætlar að breyta innréttingum í verslunum sínum. Fjallað er um málið í Dagens Næringsliv. Þar segir að í tilefni þessa hafi Dressmann flogið 600 verslunarstjórum sínum til Argentínu þar sem ráðstefna var haldin til að kynna breytingarnar. Þar héldu Roling Stones einkatónaleika fyrir verslunarstjórana. Talið er að þeir tónleikar hafi kostað Dressmann nokkur hundruð milljóna kr. Knut Vidar Nielsen frá auglýsingastofunni Sprint segir að samkomulagið milli Dressmann og Rolling Stones feli m.a. í sér að hljómsveitin leggur til sína eigin fatalínu sem síðan verður til sölu í verslunum Dressmann. Samhliða þessu hefur Dressmann keypt höfundaréttinn að sex nýjum lögum Rolling Stones en þau á að nota í nýrri auglýsingaherferð. Eigendur Dressmann, bræðurnir Petter, Joakim og Marius Varner, eru mjög ánægðir með samkomulagið við Rolling Stones og sjá það sem tímamót fyrir keðjuna.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira