Róbert Gunnarsson línumaðurinn sterki í íslenska landsliðinu í handbolta var ánægður með varnarleik liðsins gegn Þjóðverjum þrátt fyrir að hann leiki sjálfur sjaldan eða aldrei í vörninni.
„Ég er alltaf að gefa Sverre og Ingimundi „tips" og þeir ráða hvort þeir nota það eða ekki," sagði Róbert og hló þegar hann spjallaði við visir.is eftir 27-23 sigur Íslands gegn Þjóðverjum í kvöld.
Róbert segir ennfremur að það sé hvergi skemmtilegra að leika handbolta en í Laugardalshöllinni þar sem hann mætti sjálfur sem barn á landsleiki á árum áður.