Hjálpardekk losað af vestra 23. júní 2011 08:00 Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, skýrði hagstjórnarstefnu bankans og framtíðarhorfur í gær. Fréttablaðið/AP
Bandaríski seðlabankinn tilkynnti í gær að hann muni kaupa síðasta skammtinn af ríkisskuldabréfum í lok mánaðar í næstu viku. Eftir það muni ljúka þessum stuðningi hins opinbera við banka og fjármálafyrirtæki þar í landi sem varað hefur síðastliðin þrjú ár. Bankastjórnin vísaði til þess í tilkynningu í gær að þessi hjálpar-lína seðlabankans hafi verið dregin til baka þar sem vísbendingar séu um að efnahagslífið sé að taka við sér þótt gangurinn sé hægari en áður var reiknað með. Nú er gert ráð fyrir 2,7 til 2,9 prósenta hagvexti á árinu í stað allt að 3,3 prósenta vaxtar. Að sama skapi hefur dregið verulega úr væntingum um allt að 4,2 prósenta hagvöxt á næsta ári. Alþjóðlegar sveiflur hafa helst sett strik í reikning bankastjórnarinnar, svo sem verðhækkun á raforkuverði og hrávöru auk þess sem jarðskjálftinn í Japan í mars hefur sitt að segja en hann olli töluverðri truflun hjá bílaframleiðendum. Verðlag hefur lækkað nokkuð frá áramótum og gerir bandaríski seðlabankinn ráð fyrir að verðbólga fari ekki mikið yfir tvö prósent á árinu. Þá gera spár bankans ráð fyrir að draga muni út atvinnuleysi næstu misseri þótt það hafi aukist til skamms tíma. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mældist 9,1 prósent í síðasta mánuði. Á sama tíma drógu fyrirtæki vestanhafs úr ráðningum. Þótt seðlabankinn hafi hætt kaupum á ríkisskuldabréfum er ekki þar með sagt að hann ætli að sleppa hagkerfinu alveg út í lífið. Bandarískir fjölmiðlar segja að seðlabankinn muni enn hafa slaka á peningamálastefnunni og halda stýrivöxtum niðri við núllið í langan tíma. Bandaríska stórblaðið New York Times hefur eftir sérfræðingum á fjármálamarkaði að ekki séu líkur á hækkun stýrivaxta fyrr en einhvern tíma á næsta ári. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Samstarf Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira