Elsti Íslendingurinn lést í gær 23. ágúst 2011 04:00 Torfhildur í kvennahlaupi 102 ára Torfhildur tók þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ árið 2006 þegar hún var 102 ára að aldri. Hún var elsti keppandinn á landsvísu.
Elsti Íslendingurinn, Torfhildur Torfadóttir, lést á Ísafirði í gær. Torfhildur varð 107 ára gömul 24. maí síðastliðinn. Hún var fædd í Asparvík í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu 24. maí árið 1904, yngst ellefusystkina, og ólst upp í Selárdal í Steingrímsfirði. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta. Torfhildur var í vinnumennsku í Reykhólasveit í Austur-Barðastrandarsýslu eftir fermingu. Hún flutti síðan til Ísafjarðar og giftist Einari Jóelssyni sjómanni. Einar lést árið 1981. Þau eignuðust fimm börn og eru þrjú á lífi, Torfi 61 árs, Sigurbjörn 69 ára og Kristín 78 ára. Langlífi virðist vera í ætt Torfhildar, því bróðir hennar, Ásgeir, varð hundrað ára, Eymundur, annar bróðir, 96 ára og Guðbjörg systir hennar 91 árs. Ekki er vitað um neina íbúa Vestfjarða sem náð hafa hærri aldri en Torfhildur, samkvæmt vefsíðunni Langlífi.net. Torfhildur dvaldist á öldrunardeild Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði á síðustu árum. Guðríður Guðbrandsdóttir, sem varð 105 ára í maí, er nú elsti Íslendingurinn.- sv
Fréttir Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira