Goodyear er flaggskipið okkar 25. október 2011 11:00 Starfsmenn Kletts, frá vinstri: Gísli Ólafsson, Þorgeir H. Kristmannsson, Eggert B. Eggertsson og Halldór Jóhannsson hafa hagsmuni viðskiptavinarins alltaf að leiðarljósi. Mynd/Valli
Klettur - sala og þjónusta ehf. er nýlegt fyrirtæki sem byggir á gömlum grunni. Klettur er til húsa í Klettagörðum 8 við Sundahöfn og er stór heildsali á dekkjum fyrir fólksbíla, jeppa, sendibíla, vörubíla, vinnuvélar og mótorhjól auk þess að reka glæsilega dekkjaþjónustu fyrir minni fólksbíla og stærstu gerðir vörubíla. Aðalvörumerki Kletts í hjólbörðum eru Goodyear og Dunlop en þau merki hafa yfir 100 ára reynslu í framleiðslu á hjólbörðum. Mikið úrval er af bæði negldum og ónegldum dekkjum. Goodyear er flaggskip fyrirtækisins en önnur merki sem það er með eru:Winterforce sem eru kanadísk dekk en þau hafa verið gríðarlega vinsæl undir óbreytta jeppa og jepplinga. Winterforce-dekkin henta afar vel við íslenskar aðstæður og eru fáanleg bæði negld og ónegld á góðu verði. Kelly og Fulda eru undirmerki frá Goodyear framleidd í Evrópu á góðu verði. Þessi vörumerki eru mjög sterk og hafa verið lengi á dekkjamarkaðinum. Minerva er síðan í ódýrasta flokknum, en þau eru flipaskorin og hægt að fá þau bæði negld og ónegld. Goodyear UltraGrip hámarkar veggripið við veginn, árangur UltraGrip Ice+ við erfiðustu vetraraðstæður hefur sýnt sig og sannað. Það er ekki einungis 8 prósentum betri árangur en sambærileg dekk hafa heldur er hönnun vetrardekkjanna hljóðlátari og betri í aksturseiginleikum. Við hugsum um öryggi þitt með nýrri tækni svo þú þarft aðeins að einbeita þér að akstrinum. Klettur sér m.a. um að þjónusta bílaumboðin Heklu og Öskju með hjólbarða. Einnig var nýlega undirritaður samstarfssamningur við Toyota um alla hjólbarðaþjónustu. Klettur er einnig með áralanga reynslu í að þjónusta atvinnugeirann, bæði vörubíla og vinnuvélar. Gott aðgengi er að upplýsingum um dekk á heimasíðu Kletts. www.klettur.is. Starfsmenn Kletts reyna að vera leiðbeinandi og leggja ríka áherslu á góða þjónustu og að geta aðstoðað viðskiptavininn fljótt og vel.
Sérblöð Mest lesið Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Viðskipti innlent Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Neytendur Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Engin endurgreiðsla þrátt fyrir rifbeinsbrot Neytendur Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Neytendur Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Viðskipti innlent Brá sér frá í sauðburð og kvíðinn ferðamaður flúði Neytendur „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Atvinnulíf Þurfti ekki að sýna fram á að greitt hafi verið fyrir duldar auglýsingar Neytendur Máttu rukka íslenska konu um 1,2 milljónir fyrir dvöl á spítalanum Neytendur Fleiri fréttir Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira