NBA: New Orleans endaði átta leikja sigurgöngu San Antonio Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2011 11:00 Manu Ginobili og félagar í San Antonio Spurs töpuðu illa í nótt. Mynd/AP
New Orleans Hornets vann sinn áttunda leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og endaði um leið átta leikja sigurgöngu San Antonio Spurs, liðsins með besta árangurinn í deildinni. Kevin Durant tryggði Oklahoma City sigur á New York með flautukörfu, Washington vann Boston, Dirk Nowitzki tryggði Dallas sigur á New Jersey sex sekúndum fyrir leikslok og 38 stig frá LeBron James hjálpuðu Miami að enda fjögurra leikja taphrinu.David West var með 18 stig og 10 fráköst þegar New Orleans Hornets vann 96-72 heimasigur á San Antonio Spurs. Yfirburðir Hornets-liðsins voru miklir því liðið komst mest 31 stigi yfir í leiknum. Marcus Thornton skoraði 18 stig fyrir New Orleans og Trevor Ariza skoraði 15 stig en þeir voru báðir með fjóra þrista í leiknum. San Antonio var búið að vinna átta leiki í röð og aðeins búið að tapa sjö leikjum á tímabilinu en þetta var í annað sinn í vetur sem liðið tapar fyrir New Orleans. Tony Parker skoraði 10 stig fyrir San Antonio og var eini byrjunarliðsmaðurinn sem skoraði yfir tíu stig en Tiago Splitter var stigahæstur með 11 stig. Liðsfélagar Kevin Durant fagna honum eftir sigurkörfuna í nótt.Mynd/AP Kevin Durant tryggði Oklahoma City Thunder 101-98 sigur á New York Knicks með þriggja stiga körfu úr þröngri stöðu um leið og leiktíminn rann út. Durant skoraði 30 stig og tók 12 fráköst í leiknum en Oklahoma City vann upp sex stiga forskot New York á síðustu þremur mínútunum. Russel Westbrook skoraði 28 stig þar af 14 þeirra af vítalínunni. Danilo Gallinari var með 23 stig fyrir New York og Amare Stoudemire var með 18 stig og 12 fráköst.John Wall skoraði stóran þrist á lokamínútunni, spjaldið ofan í, þegar Washington Wizards vann óvæntan 85-83 sigur á Boston Celtics. Boston-liðið komst mest 16 stigum yfir í fyrsta leikhlutanum en missti leikinn frá sér. Rashard Lewis var með 18 stig og 11 fráköst hjá Washington og þeir John Wall og JaVale McGee skoruðu báðir 16 stig. Kevin Garnett var með 17 stig fyrir Boston og Ray Allen var með 16 stig.LeBron James var með 38 stig og 11 fráköst og Mike Miller skoraði 22 af 32 stigum sínum í öðrum leikhluta þegar Miami Heat vann 120-103 heimasigur á Toronto Raptors. Miami endaði þar með fjögurra leikja taphrinu sína en liðið lék bæði án Dwyane Wade (mígreni) og Chris Bosh (ökklameiðsli). DeMar DeRozan skoraði 30 stig fyrir Toronto og Andrea Bargnani var með 28 stig. Vinny Del Negro, þjálfari Los Angeles Clippers talar hér við stjörnuleikmann sinn Blake Griffin.Mynd/AP Dirk Nowitzki tryggði Dallas Mavericks 87-86 sigur á New Jersey Nets með tveggja stiga stökkskoti sex sekúndum fyrir leikslok. Nowitzki var með 23 stig í leiknum en hitti þó aðeins úr 7 af 24 skotum. Tyson Chandler bætti við 19 stigum í fimmta sigri Dallas-liðsins í röð. Brook Lopez var með 24 stig fyrir New Jersey.Dwight Howard var með 22 stig og 14 fráköst þegar Orlando Magic vann 118-104 sigur á Houstin Rockets. Hedo Turkoglu var með 21 stig fyrir Orlando-liðið sem stakk af í fyrri hálfleik. Chase Budinger skoraði 19 stig fyrir Houston og Kevin Martin var með 18 stig.Blake Griffin var með 30 stig og 18 fráköst auk mikilvægrar þriggja stiga stiga körfu á lokamínútunni þegar Los Angeles Clippers vann 113-109 sigur á Golden State Warriors. Þetta var tólfti sigur Clippers-liðsins í síðustu sautján leikjum og sjöundi heimasigurinn í röð. Eric Gordon skoraði 23 stig fyrir Los Angeles Clippers en Stephen Curry var með 32 stig og 8 stoðsendingar hjá Golden State.Cleveland réð ekki við Derrick Rose í nótt.Mynd/APDerrick Rose var með 24 stig þegar Chicago Bulls vann 92-79 sigur á Cleveland Cavaliers. Þetta var sextánda tap Cleveland í röð og tuttugasta tapið í röð á útivelli. Síðasti sigur liðsins kom á móti New York 18. desember síðastliðinn. Carlos Boozer og Luol Deng skoruðu báðir 20 stig fyrir Chicago.Joe Johnson skoraði 32 stig þegar Atlanta Hawks vann 103-87 sigur á Charlotte Bobcats daginn eftir vandræðalegt tap liðsins á móti New Orleans. Josh Smith skoraði 16 stig fyrir Atlanta en D.J. Augustin var með 20 stig fyrir Charlotte.LaMarcus Aldridge var með 25 stig og 12 fráköst þegar Portland Trail Blazers vann 97-92 sigur á Indiana Pacers. Nicolas Batum hitti úr 5 af 8 þriggja stiga skotum sínum og bætti við 23 stigum. Danny Granger skoraði 24 stig í fjórða tapleik Indiana í röð.Detroit-leikmennirnir Ben Wallace og Austin Daye voru ánægðir með gang mála í nótt.Mynd/APTayshaun Prince var með 17 stig, 13 fráköst og 5 stoðsendingar þegar Detoit Pistons vann 75-74 sigur á Phoenix Suns. Steve Nash var með 14 stig og 9 stoðsendingar hjá Phoenix, Jared Dudley skoraði 13 stig og Marcin Gortat var með 11 stig og 14 fráköst en það dugði ekki til. Andre Iguodala skoraði 22 stig og Lou Williams bætti við 20 stigum þegar Philadelphia 76 ers vann 96-85 heimasigur á Utah Jazz. Þetta var tólfti sigur Sixers-liðsins í síðustu fimmtán leikjum. Deron Williams var með 20 stig og 14 stoðsendingar í fjórða tapleik Utah í röð sem er lengsta taphrina liðsins í meira en ár. Marc Gasol var með 24 stig og 16 fráköst og Zach Randolph bætti við 16 stigum og 11 fráköstum þegar Memphis Grizzlies vann 94-81 útisigur á Milwaukee Bucks. Earl Boykins skoraði 23 stig fyrir Milwaukee. Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt:LeBron James fer hér framhjá DeMar DeRozan.Mynd/APCharlotte Bobcats-Atlanta Hawks 87-103 New Jersey Nets-Dallas Mavericks 86-87 Washington Wizards-Boston Celtics 85-83 Detroit Pistons-Phoenix Suns 75-74 Miami Heat-Toronto Raptors 120-103 Philadelphia 76ers-Utah Jazz 96-85 Chicago Bulls-Cleveland Cavaliers 92-79 New Orleans Hornets-San Antonio Spurs 96-72 Oklahoma City Thunder-New York Knicks 101-98 Houston Rockets-Orlando Magic 104-118 Milwaukee Bucks-Memphis Grizzlies 81-94 Portland Trail Blazers-Indiana Pacers 97-92 Los Angeles Clippers-Golden State Warriors 113-109
NBA Mest lesið Dagur brjálaður á blaðamannafundi: Króatía eins og frosinn kjúklingur í skyndibitakeðju EHF Handbolti Króatar brjálaðir og Dagur sagður sniðganga fjölmiðlaviðburð Handbolti Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti EHF svarar Degi: Viðurkenna að Ísland og Króatía glími við erfiðari aðstæður Handbolti Alfreð brosti breitt: „Hafði hárrétt fyrir mér sem betur fer“ Handbolti Óvinur Íslands heldur nú með Íslandi Handbolti Sigvaldi kallaður inn í íslenska hópinn Handbolti Svona var fundur Íslands og Danmerkur í Herning Handbolti „Gjörsamlega glórulaust“ Handbolti Lærisveinn Alfreðs gafst upp og skipti um herbergi Handbolti Fleiri fréttir „Þetta gefur mér vonir um að við getum barist um þetta“ Uppgjörið: Njarðvík - Álftanes 101-96| Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir heimamenn Uppgjör og viðtöl: ÍA - KR 98-120 | Fjórði sigur KR-inga í röð Leik lokið: Grindavík - Valur 78-67 | Áfram fullkomnir á heimavelli Uppgjör og viðtal: Ármann - ÍR 74-109 | Fóru létt með kanalausa Ármenninga Valur og KR styrkja sig rétt fyrir lok gluggans Uppgjörið: Valur - Haukar 90-97 | Fimm í röð hjá Haukum Umfjöllun og viðtöl: Grindavík 74-79 KR | Risastór sigur KR Doncic skoraði 46 stig en þjálfarinn segir hann reyna á þolinmæðina Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 98-81 | Keflvíkingar skelltu Stólunum „Miklu skemmtilegra að spila körfubolta þegar fólkið er í húsinu“ Martin fagnaði eftir framlengingu Rose hengdur upp í rjáfur í Chicago Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Tryggvi og félagar sluppu með skrekkinn á móti botnliðinu NBA-leik frestað vegna óeirða í Minneapolis Elvar og félagar köstuðu frá sér sigrinum Njarðvík nær í nýjan miðherja eftir meiðslin Körfuboltakvöld: Betra að temja villtan leikmann en að vera með einhverja rolu Uppgjörið KR - Grindavík 93-71 | KR annað liðið til þess að vinna Grindavík Uppgjör: Tindstóll-Njarðvík 113-92 | Stólarnir léku sér að Njarðvíkingum „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Uppgjörið: Keflavík - Ármann 93-102 | Ármenningar unnu í Keflavík Uppgjörið: Álftanes - ÍA 89-83 | Justin James afþiðnaði á réttum tíma Kári: Það koma dalir á hverju tímabili Leik lokið: ÍR - Stjarnan 109-118 | Stjörnumenn áfram á sigurbraut Uppgjörið: Valur - Þór Þ. 80-71 | Valsmenn unnu framlengdan leik Uppgjörið: Njarðvík-Keflavík 88-77 | Danielle og Brittany fóru á kostum Sjá meira
Dagur brjálaður á blaðamannafundi: Króatía eins og frosinn kjúklingur í skyndibitakeðju EHF Handbolti
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti
Dagur brjálaður á blaðamannafundi: Króatía eins og frosinn kjúklingur í skyndibitakeðju EHF Handbolti
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti