Arsenal vann sannfærandi 3-0 útisigur á Birmingham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2011 19:26
Arsenal komst aftur á sigurbraut með 3-0 útisigri á Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Hollendingurinn Robin van Persie skoraði sitt fyrsta deildarmark í átta mánuði og Samir Nasri skoraði sitt þrettánda mark á tímabilinu í þessum sannfærandi sigri Arsenal-liðsins. Arsenal er nú tveimur stigum á eftir toppliðum Manchester United og Manchester City en öll þrjú efstu liðin unnu leiki sína í dag. Tapið þýðir hinsvegar að Birmingham situr nú í næstneðsta sæti deildarinnar. Robin van Persie fiskaði ódýra aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig á 13. mínútu og skoraði síðan beint úr aukaspyrnunni með viðkomu í Birmingaham-manninum Lee Bowyer. Þetta var fyrsta deildarmark Hollendingsins síðan 9. maí en hann hafði ekki skorað í fyrstu átta deildarleikjum sínum á þessu tímabili. Samir Nasri kom Arsenal í 2-0 á 58. mínútu með laglegu merki eftir skemmtilegt samspil við Cesc Fabregas. Þetta var þrettánda mark Frakkans á tímbilinu. Roger Johnson var síðan fyrir því að skora í eigið mark átta mínútum síðar eftir að Nasri og Fabregas höfðu splundrað vörn Birmingham með laglegu samspili. Skot Fabregas var varið en boltinn fór síðan í Johnson og rann yfir línuna. Arsenal hélt þarna marki sínu hreinu í fyrsta sinn í átta deildarleikjum eða síðan liðið vann 2-0 sigur á Wolves 10. nóvember.
Skroll-Íþróttir Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira