NBA: Thunder fyrsta liðið til að vinna þrjú kvöld í röð | Lakers vann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2012 09:00 Kevin Durant. Mynd/AP
Oklahoma City Thunder varð í nótt fyrsta liðið í NBA-deildinni í vetur sem nær því að vinna leik þrjú kvöld í röð en Thunder vann þá 108-96 sigur á San Antonio Spurs. Los Angeles Lakers hélt áfram góðu gengi sínu á heimavelli og Ricky Rubio er að slá í gegn hjá Minnesota Timberwolves. Kevin Durant var með 21 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar í 108-96 sigri Oklahoma City Thunder á San Antonio Spurs og James Harden kom með 20 stig inn af bekknum. Gary Neal skoraði mest fyrir Spurs eða 18 stig. Kobe Bryant var með 26 stig þegar Los Angeles Lakers vann 90-82 sigur á Memphis Grizzlies en þetta var sjötti heimasigur liðsins í röð. Andrew Bynum var með 15 stig og 15 fráköst í leiknum, Matt Barnes skoraði 15 stig og Pau Gasol var með 13 stig og 15 fráköst. Lakers-liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum en hefur síðan unnið 6 af 8 leikjum. Jason Richardson skoraði 22 stig, Glen Davis skoraði 20 stig og Dwight Howard var í villuvandræðum þegar Orlando Magic vann 104-97 útisigur á Sacramento Kings. Howard var bara með 5 stig og 4 fráköst. Tyreke Evans var með 28 stig og 8 stoðsendingar hjá Kings og DeMarcus Cousins bætti við 16 stigum og 10 fráköstum. Kevin Love náði enn einni tvennunni þegar Minnesota Timberwolves vann 93-72 sigur á Washington. Wizards sem hefur ekki enn unnið leik. Love var með 20 stig og 16 fráköst en spænski leikstjórnandinn Ricky Rubio bætti við 13 stigum og 14 stoðsendingum. Rubio hefur slegið í gegn með Minnesota-liðinu á sínu fyrsta tímabili. Steve Nash var með 10 stig og 17 stoðsendingar á 27 mínútum þegar Phoenix Suns vann 109-93 sigur á Milwaukee Bucks. LaMarcus Aldridge var með 28 stig og 8 fráköst þegar Portland Trail Blazers vann 98-78 sigur á Cleveland Cavaliers. Wesley Matthews skoraði 24 stig fyrir Portland en nýliðinn Kyrie Irving var með 21 stig fyrir Cleveland.Úrslitin í leikjum næturinnar: Washington Wizards - Minnesota Timberwolves 72-93 Sacramento Kings - Orlando Magic 97-104 Oklahoma City Thunder - San Antonio Spurs 108-96 Phoenix Suns - Milwaukee Bucks 109-93 Portland Trail Blazers - Cleveland Cavaliers 98-78 Los Angeles Lakers - Memphis Grizzlies 90-82Staðan í NBA-deildinni.
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira