Golf

Stefán Már og Þórður Rafn á fjórum yfir pari á fyrsta hring

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stefán Már fékk um 60 þúsund krónur í verðlaunafé fyrir 23. sætið á mótinu um nýliðna helgi.
Stefán Már fékk um 60 þúsund krónur í verðlaunafé fyrir 23. sætið á mótinu um nýliðna helgi.
Kylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur léku fyrsta hringinn á Gloria Old Course Classic mótinu í Tyrklandi á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari. Þetta kemur fram á kylfingur.is.

Mótið er hluti af EPD-mótaröðinni en fyrstu fjögur mót ársins fara fram í Tyrklandi. Þétt er leikið á mótinu en þeir félagar léku á fyrsta mótinu um nýliðna helgi þar sem Stefán Már hafnaði í 23. sæti en Þórður í 72. sæti.

Þórði Rafni gekk vel framan af degi og var á einu höggi undir pari eftir átta holur. Honum fataðist hins vegar flugið seinni part dags þegar hann fékk fimm skolla. Stefán Már fékk sex skolla og tvo fugla á hringnum.

Um 40 efstu kylfingarnir komast í gegnum niðurskurðinn sem fer fram eftir tvo hringi. Stefán Már og Þórður Rafn þurfa báðir að bæta sinn leik á morgun ef þeir ætla að eiga möguleika á að komast áfram. Þeir eru sem stendru í 54. sæti af 88 keppendum.

Þjóðverjinn Björn Stromsky hefur eins höggs forystu á næstu menn. Stromsky spilaði hringinn á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari.



Smellið hér til að skoða stöðuna í mótinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×