Golf

Stanley kom sterkur til baka og sigraði í Phoenix

Kyle Stanley sigraði á Farmers Insurance meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem lauk í gær.
Kyle Stanley sigraði á Farmers Insurance meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem lauk í gær. AP
Kyle Stanley sigraði á Farmers Insurance meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem lauk í gær. Þetta er fyrsti sigur Stanley á sterkustu atvinnumótaröð heims en hann er 24 ára gamall Bandaríkjamaður. Fyrir viku var Stanley í efsta sæti þegar aðeins nokkrar holur voru eftir á lokakeppnisdeginum á Torrey Pines en þar gerði hann afdrifarík mistök sem kostuðu hann sigurinn. Hann tapaði í bráðabana gegn Brandt Snedeker á því móti.

Kyle Stanley var átta höggum á eftir Spencer Levin sem var efstur fyrir lokahringinn. Stanley lék frábært golf á lokahringnum, 65 höggum, og dugði það til þess að landa sigrinum. Á sama tíma gekk ekkert upp hjá Levin sem lék á 75 höggum.

Fyrir sigurinn fékk Stanley rétt um 130 milljónir kr.í verðlaunafé auk þess sem hann tryggði sér keppnisrétt á PGA mótaröðinni í 2 ár.

Mótið í Phoenix er þekkt fyrir góða stemningu á meðal áhorfenda og við 16. holuna á TPC vellinum í Scottsdale fá kylfingarnir að upplifa svipaða stemningu og er vanalega á stórleikjum í boltaíþróttum.

Úrslit:

269 Kyle Stanley

(69-66-69-65)

270 Ben Crane

(69-67-68-66)

271 Spencer Levin

(65-63-68-75)

272 D.J. Trahan

(72-70-64-66)

273 Kevin Na (66-73-69-65), Brendan Steele (71-69-69-64) Bubba Watson (66-70-67-70)

274 John Rollins, Jason Dufner, Bo Van Pelt, Webb Simpson.

275 Chris Stroud, Trevor Immelman, John Huh.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×