NBA í nótt: Lin hetja New York á ný Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. febrúar 2012 11:00 Jeremy Lin fagnar í leiknum í nótt. Mynd/AP
Jeremy Lin var enn og aftur lykilmaður í liði New York Knicks sem vann sinn fimmta leik í röð, í þetta sinn gegn Minnesota Timberwolves, 100-98. Lin spilaði reyndar skelfilega í seinni hálfleik en fór á vítalínuna þegar 4,9 sekúndur voru eftir og skoraði mikilvægt stig. Hann skoraði alls 20 stig í leiknum, gaf átta stoðsendingar og tók sex fráköst. Alls ekki slæmar tölur en hann skoraði aðeins fimm stig í seinni hálfleik og hitti þá úr einu af þrettán skotum úr opnu spili. Lin hefur skotið á stjörnuhimininn á augabragði en fyrir rúmri viku var þessi kappi nánast óþekktur. Í þessum fimm leikjum hefur hann skorað minnst 20 stig í hverjum leik og vakið gríðarlega athygli í Bandaríkjunum. New York var sjö stigum undir þegar tæpar sjö mínútur voru eftir en Lin og félagar náðu að síga fram úr á lokakaflanum. Steve Novak jafnaði metin með þriggja stiga skoti þegar 36 sekúndur voru eftir en hann var alls með fimmtán stig í leiknum. Kevin Love skoraði 32 stig og var með 21 frákast fyrir Minnesota sem fékk tvö tækifæri til að tryggja sér sigurinn á síðustu fimm sekúndum leiksins. LA Clippers vann Charlotte, 111-86, þar sem þeir Chris Paul, Blake Griffin og DeAndre Jordan voru allir með tvöfaldar tvennur. Paul var með átján stig og fjórtán stoðsendingar á aðeins 28 mínútum. Griffin var með 21 stig og tíu fráköst og Jordan ellefu stig og tólf fráköst. Charlotte hefur tapað fjórtán leikjum í röð sem er félagsmet auk þess sem félagið er komið langt á veg með að jafna NBA-metið í þessum efnum. Dallas vann Porltand, 97-94, í tvíframlengdum leik. Dirk Nowitzky skoraði 20 stig fyrir Dallas.Úrslit næturinnar: Charlotte - LA Clippers 86-11 Indiana - Denver 109-113 Cleveland - Philadelphia 84-99 New Jersey - San Antonio 89-103 Minnesota - New York 98-100 Dallas - Portland 97-94 Milwaukee - Orlando 94-99 Sacramento - Phoenix 84-98NBA í nótt: Lin hetja New York á ný Jeremy Lin var enn og aftur lykilmaður í liði New York Knicks sem vann sinn fimmta leik í röð, í þetta sinn gegn Minnesota Timberwolves, 100-98. Lin spilaði reyndar skelfilega í seinni hálfleik en fór á vítalínuna þegar 4,9 sekúndur voru eftir og skoraði mikilvægt stig. Hann skoraði alls 20 stig í leiknum, gaf átta stoðsendingar og tók sex fráköst. Alls ekki slæmar tölur en hann skoraði aðeins fimm stig í seinni hálfleik og hitti þá úr einu af þrettán skotum úr opnu spili. Lin hefur skotið á stjörnuhimininn á augabragði en fyrir rúmri viku var þessi kappi nánast óþekktur. Í þessum fimm leikjum hefur hann skorað minnst 20 stig í hverjum leik og vakið gríðarlega athygli í Bandaríkjunum. New York var sjö stigum undir þegar tæpar sjö mínútur voru eftir en Lin og félagar náðu að síga fram úr á lokakaflanum. Steve Novak jafnaði metin með þriggja stiga skoti þegar 36 sekúndur voru eftir en hann var alls með fimmtán stig í leiknum. Kevin Love skoraði 32 stig og var með 21 frákast fyrir Minnesota sem fékk tvö tækifæri til að tryggja sér sigurinn á síðustu fimm sekúndum leiksins. LA Clippers vann Charlotte, 111-86, þar sem þeir Chris Paul, Blake Griffin og DeAndre Jordan voru allir með tvöfaldar tvennur. Paul var með átján stig og fjórtán stoðsendingar á aðeins 28 mínútum. Griffin var með 21 stig og tíu fráköst og Jordan ellefu stig og tólf fráköst. Charlotte hefur tapað fjórtán leikjum í röð sem er félagsmet auk þess sem félagið er komið langt á veg með að jafna NBA-metið í þessum efnum. Dallas vann Porltand, 97-94, í tvíframlengdum leik. Dirk Nowitzky skoraði 20 stig fyrir Dallas. Úrslit næturinnar: Charlotte - LA Clippers 86-11 Indiana - Denver 109-113 Cleveland - Philadelphia 84-99 New Jersey - San Antonio 89-103 Minnesota - New York 98-100 Dallas - Portland 97-94 Milwaukee - Orlando 94-99 Sacramento - Phoenix 84-98
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira