Golf

Mahan tryggði sér sigur á Heimsmótinu í holukeppni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mahan slær úr glompu á Dove Mountain vellinu í Arizon í dag.
Mahan slær úr glompu á Dove Mountain vellinu í Arizon í dag. Nordic Photos / Getty Images
Bandaríkjamaðurinn Hunter Mahan sigraði Norður-Írann Rory McIlroy í úrslitum Heimsmótsins í holukeppni í golfi. Mahan tryggði sér sigurinn á 17. holu þegar hann hafði tveggja holu forskot á McIlroy.

Mahan spilaði frábært golf á Dove Mountain vellinum í Arizona í dag. Hann lagði Matt Kuchar í undanúrslitum fyrr í dag með töluverðum yfirburðum og hafði svo betur í baráttu við McIlroy.

McIlroy fékk tvo skolla í röð á fyrri níu holunum gegn Mahan sem nýtti sér mistökin og vann þrjár holur í röð. Hann vann svo einnig 10. holuna áður en McIlroy klóraði í bakkann með sigri á 11. holu.

Pressan var öll á hinum 22 ára McIlroy að vinna upp þriggja holu forskot Mahan áður en það yrði um seinan. Kappanir pöruðu tvær næstu holur áður en McIlroy gerði áhorfendum á Dove Mountain vellinum greiða og vann 14. holuna. Tveggja holu munur og fjórar holur eftir.

Mahan hélt hins vegar sínu striki og gerði engin mistök. Félagarnir pöruðu næstu holur og því varð McIlroy að vinna 17. holuna til að eygja möguleika á sigri. Það tókst ekki og Mahan tryggði sér um 170 milljónir íslenskra króna í verðlaunafé.

McIlroy fer svo sem ekki tómhentur heim því hann fékk um 105 milljónir íslenskra króna í sinn hlut.

Hinn 29 ára Mahan, sem var í 22. sæti heimslistans fyrir mótið, tekur væntanlega gott stökk upp listann með sigrinum í Arizona. Hann lagði sterka kylfinga á borð við Steve Stricker, sem vann mótið árið 2001, og Matt Kuchar á leið sinni í úrslitin.

Luke Donald, sem féll úr keppni í 1. umferð mótsins, heldur 1. sæti heimslistans um sinn. McIlroy hefið hrifsað það af honum með sigri en það verður að bíða betri tíma.

Bandaríkjamaðurinn Mark Wilson hafði betur gegn Englendingnum Lee Westwood í leiknum um þriðja sætið. Úrslitin réðust ekki fyrr en á síðustu holunni.

Sigurvegarar á Heimsmótinu í holukeppni golfi undanfarin tíu ár

2011 Luke Donald

2010 Ian Poulter

2009 Geoff Ogilvy

2008 Tiger Woods

2007 Henrik Stenson

2006 Geoff Ogilvy

2005 David Toms

2004 Tiger Woods

2003 Tiger Woods

2002 Kevin Sutherland




Fleiri fréttir

Sjá meira


×