Golf

Ólafía Þórunn íþróttamaður vikunnar hjá Wake Forest háskólanum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafía Þórunn í viðtalinu.
Ólafía Þórunn í viðtalinu.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, var valinn íþróttamaður vikunnar við Wake Forest háskólann í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum.

Ólafía fór í létt og skemmtilegt myndbandsviðtal vestanhafs vegna viðurkenningarinnar þar sem hún ræddi nám sitt við skólann og auðvitað golfið.

„Ég valdi hagfræði til að geta sloppið við ensku auk þess sem ég er betri í stærðfræði. Ég sit einnig leiklistarkúrsa og námskeið í að koma fram til þess að vinna í ótta mínum að tala opinberlega," sagði Ólafía í viðtalinu.

Fréttamaðurinn veltir fyrir sér hversu erfitt sé að sameina námið og golfið.

„Þú þarft að vera skipulagður. Sum kvöld eru löng og stundum þarftu að vakna snemma." sagði Ólafía sem kvíðir ekki prófanna.

Í viðtalinu ræðir Ólafía einnig um muninn á golfvöllunum hér heima og vestanhafs og liðsfélaga sína í skólanum.



Hér má horfa á viðtalið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×