Jeremy Lin fór á kostum | Durant skoraði 51 stig fyrir Oklahoma 20. febrúar 2012 09:00 Kevin Durant skoraði 51 stig fyrir Oklahoma gegn Denver í gær í NBA deildinni. AP
Jeremy Lin heldur sínu striki hjá New York Knicks í NBA deildinni en nýliðinn skoraði 28 stig og gaf 14 stoðsendingar í 104-97 sigri Knicks gegn meistaraliði Dallas Mavericks í New York í gærkvöld. Þetta var áttundi sigur Knicks í síðustu 9 leikjum. Dirk Nowitzki skoraði 34 stig fyrir Dallas sem hafði unnið sex leiki í röð. Kevin Durant fór á kostum í liði Oklahoma í gær þegar hann skoraði 51 stig. JR Smith skoraði 15 stig fyrir New York Knicks en þetta var fyrsti leikur hans eftir að hann samdi við Knicks. Smith var samningsbundinn kínversku liði þar sem hann lék á meðan verkbannnið stóð yfir í NBA deildinni s.l. haust. Miami Heat vann sinn sjötta leik í röð með 90-78 sigri í grannaslagnum gegn Orlando. Dwyane Wade skoraði 27 stig og LeBron James skoraði 25, tók 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar fyrir Miami. Orlando hafði fyrir leikinn unnnið fjóra leiki í röð. Dwight Howard skoraði aðeins 12 stig fyrir Orlando en hann tók 15 fráköst í leiknum. Boston tapaði gegn Detroit á útivelli, 96-81, en þetta er í annað sinn á síðustu fimm dögum þar sem Detroit hefur betur gegn Boston. Greg Monroe skoraði 17 stig fyrir Detroit, og Rodney Stuckey skoraði 16. Paul Pierce skoraði 18 stig fyrir Boston en Kevin Garnett lék ekki með Boston af persónulegum ástæðum. Rajon Rondo var rekinn af leikvelli undir lok þriðja leikhluta eftir að hafa mótmælt dómi. Kevin Durant skoraði 51 stig fyrir Oklahoma í 124-118 sigri liðsins gegn Denver á heimavelli. Durant skoraði 31 stig í síðari hálfleik. Þetta er í fyrsta sinn sem stigakóngur s.l. tveggja tímabila skorar 50 stig í NBA deildinni. Russell Westbrook skoraði 40 stig fyrir Oklahoma, og Serge Ibaka skoraði 14 stig, tók 15 fráköst og varði alls 11 skot. LA Lakers tapaði á útivelli gegn Phoenix, 102-90. Kobe Bryant skoraði 32 stig fyrir Lakers en hann tapaði boltanum 10 sinnum. Jared Dudley skoraði 25 stig fyrir Phoenix, Marcin Gortat skoraði 21 stig og tók 15 fráköst. Steve Nash gaf 14 stoðsendingar fyrir Phoenix. Úrslit: New York Knicks – Dallas 104-97 Miami – Orlando 90-78 Detroit – Boston 96-81 Cleveland – Sacramento 93-92 Indiana – Charlotte 108-73 New Jersey – Milwaukee 85-92 Houston – Utah 101-85 Minnesota – Philadelphia 92-91 Oklahoma – Denver 124-118 Phoenix – LA Lakers 102-90
NBA Mest lesið Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Wenger á allt annarri skoðun en Klopp Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Glódís: „Gríðarlega erfitt að sitja með þá tilfinningu eftir mót“ Sport Skýrsla Arons: Stórum spurningum þarf að svara Fótbolti Fleiri fréttir Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Sjá meira