Golf

Bill Haas hafði sigur eftir þriggja manna bráðabana

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haas höndlaði pressuna best í æsispennandi bráðabana.
Haas höndlaði pressuna best í æsispennandi bráðabana. Nordic Photos / Getty Images
Bandaríkjamaðurinn Bill Haas stóð uppi sem sigurvegari á Northern Trust mótinu í golfi sem lauk í Kaliforníu í gær. Bráðabana þurfti til að skera úr um sigurvegara en Haas var jafn löndum sínum Phil Mickelson og Keegan Bradley að loknum fjórum hringjum.

Úrslitin í bráðabananum réðust eftir tvær holur. Þá setti Haas niður 12 metra pútt og tryggði sér sigurinn. Þetta er fjórði sigur Haas á PGA-mótaröðinni en Kaninn er í 22. sæti heimslistans.

Fyrir lokahringinn var Haas tveimur höggum á eftir forystusauðunum Bradley og Mickelson. Haas spilaði hringinn á tveimur undir pari en Bradley og Mickelson á pari.

Mickelson tryggði sér bráðabana á átjándu holunni með því að setja niður átta metra pútt. Draumur hans um að vinna annað PGA-mótið í röð varð að engu þegar Haas bætti um betur með fyrrnefndu pútti.

Spánverjinn Sergio Garcia spilaði þó manna best í gær. Garcia, sem var á níu höggum yfir pari að loknum þremur hringjum, spilaði á sjö höggum undir pari sem var besti hringur mótsins.

Efsti maður heimslistans, Englendingurinn Luke Donald, spilaði skelfilega á lokahringnum. Donald var á pari fyrir hringinn en lauk leik á sjö höggum yfir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×