Golf

Kylfusveinninn fagnaði of snemma | Casey sló draumahöggið á rangri holu

Englendingurinn Paul Casey hefur ekki leikið mikið á PGA mótaröðinni í golfi á undanförnum mánuðum vegna meiðsla. Casey slasaðist illa í skíðaferð þar sem hann var á snjóbretti. Cadillac meistaramótið á heimsmótaröðinni var það fyrsta sem hann tekur þátt í á þessu tímabil.

Casey gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 15. braut á Doral vellinum á lokadeginum og aðstoðarmaður hans fagnaði gríðarlega – enda hélt hann að Casey hefði unnið bifreiðina sem var við teiginn. En það reyndist ekki rétt.

Það var bíll í verðlaun fyrir holu í höggi á 13. braut og Casey varð því að láta sér nægja að skrifa töluna á 1 á skorkortið. Enski kylfingurinn var hinsvegar ekkert að svekkja sig á því og gerði góðlátlegt grín að samstarfsfélaganum sem hafði fagnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×