Golf

Meiðsli Tiger Woods eru ekki alvarleg

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er ekki alvarlega meiddur á hásin eins og óttast var þegar hann hætti keppni á lokakeppnisdegi heimsmótsins í golfi s.l. sunnudag.
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er ekki alvarlega meiddur á hásin eins og óttast var þegar hann hætti keppni á lokakeppnisdegi heimsmótsins í golfi s.l. sunnudag. Getty Images / Nordic Photos
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er ekki alvarlega meiddur á hásin eins og óttast var þegar hann hætti keppni á lokakeppnisdegi heimsmótsins í golfi s.l. sunnudag.

Woods hætti keppni þegar hann var búinn með 11 holur af alls 18 á lokadeginum vegna verkja í hásin en hann hefur glímt við meiðsli á því svæði í nokkur misseri. Tiger mun hefja æfingar á ný í þessari viku og allar líkur á því að hann verði með á fyrsta stórmóti ársins – Mastersmótinu á Augusta sem hefst í byrjun apríl.

Woods skrifaði á Twitter samskiptasíðuna í gær að hann hefði fengið góðar fréttir eftir að læknar höfðu skoða meiðslin. „Ég fékk góðar fréttir frá lækninum. Lítilsháttar tognun í hásin. Fer að slá golfbolta síðar í þessari viku og er bjartsýnn fyrir næstu viku," skrifaði Woods sem gæti tekið þátt á Bay Hill meistaramótinu sem hefst í næstu viku.

Woods meiddist á hásin á Mastersmótinu fyrir ári síðan og þau meiðsli héldu honum frá keppni í þrjá mánuði. Á þeim tíma missti hann af tveimur stórmótum.

Hinn 36 ára gamli Woods hefur skráð sig til leiks á Arnold Palmer meistaramótinu á Bay Hill vellinum sem fram fer 22.-25. mars. Það er síðasta mótið sem Tiger tekur þátt í áður en kemur að Mastermótinu 5.-8. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×