Sektaður um þrjár milljónir vegna klámfenginnar myndar á Twitter Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. mars 2012 23:30 Smith spilaði með Denver Nuggets á árunum 2006-2011.
J.R. Smith, leikstjórnandi New York Knicks í NBA-deildinni í körfubolta, hefur verið sektaður um 25 þúsund dollara eða sem nemur rúmum þremur milljónum íslenskra króna, vegna Twitter-færslu og vafasamrar myndar sem fylgdi henni. Smith birti mynd af hálfnaktri konu í rúmi sínu á Twitter-síðu sinni á fimmtudagskvöld. Hann fjarlægði myndina skömmu síðar og baðst afsökunar á háttalagi sínu á föstudag. „Ég gerði mér ekki grein fyrir að þetta yrði að stórmáli," sagði Smith við fréttamenn. „Ég sé svo sannarlega eftir þessu. Í hvert skipti sem ég geri eitthvað sem kemur niður á félagi mínu sé ég eftir því," bætti Smith við. Þrátt fyrir að Smith hafi eytt færslunni kom það ekki í veg fyrir að myndin færi eins og eldur í sinu um vefheima. Hægt er að finna hana með því að slá inn nafn leikmannsins á Twitter. Smith gekk til liðs við Knicks í febrúar eftir að hafa spilað í Kína á meðan á verkbanninu í NBA-deildinni stóð. Bakvörðurinn 26 ára hefur skorað tæp níu stig að meðaltali í fyrstu níu leikjum sínum.
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira