Golf

Fín byrjun hjá Tiger Woods | lofar góðu fyrir Mastersmótið

Tiger Woods byrjaði ágætlega á PGA móti í golfi sem hófst í gær í Orlando í Bandaríkjunum.
Tiger Woods byrjaði ágætlega á PGA móti í golfi sem hófst í gær í Orlando í Bandaríkjunum. AP
Tiger Woods byrjaði ágætlega á PGA móti í golfi sem hófst í gær í Orlando í Bandaríkjunum. Hinn 36 ára gamli Woods lék á 69 höggum á Arnold Palmer Invitational meistaramótinu og er hann í fjórða sæti að loknum fyrsta keppnisdegi. Gríðarlegur áhugi er hjá fjölmiðlum sem fylgjast grannt með hverju skrefi hjá Woods í aðdraganda fyrsta stórmóts ársins – Mastersmótsins sem hefst þann 5. apríl.

Tiger Woods hefur glímt við meiðsli í hásin undanfarin misseri en svo virðist sem að meiðslin séu úr sögunni í bili. Woods hefur sigrað á 14 stórmótum á ferlinum og aðeins Jack Nicklaus hefur sigrað á fleiri stórmótum - alls 18.

„Mér líður vel, það er allt eins og það á að vera. Vonandi verður þetta svona áfram," sagði Woods að loknum fyrsta keppnisdeginum. Charlie Wie frá Suður-Kóreu og Bandaríkjamaðurinn Jason Dufner eru efstir og jafnir á 66 höggum. Bandaríkjamaðurinn Nick Watney er á 68 höggum í þriðja sæti mótsins.

„Ég gerði ekkert sem var stórkostlegt á fyrsta hringnum en ég gerði fá mistök," bætti Woods við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×