Golf

Donald slapp með skrekkinn | Leit út fyrir að hann yrði dæmdur úr leik

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Donald hafði um nóg að hugsa á Augusta-vellinum í Georgíu-fylki í gær.
Donald hafði um nóg að hugsa á Augusta-vellinum í Georgíu-fylki í gær. Nordic Photos / Getty
Englendingurinn Luke Donald vill væntanlega gleyma fyrsta hringnum á Mastersmótinu sem fyrst. Lengi vel leit út fyrir að Donald, sem spilaði á þremur höggum yfir pari, yrði dæmdur úr leik.

Talið var í fyrstu að Donald hefði kvittað á skorkort sitt með lokaskor 73 högg í stað 75. Slíkt er brottrekstrarsök og þurfi Donald að bíða í um klukkustund meðan starfsmenn mótsins rannsökuðu málið.

Í ljós kom að faxvélin sem las inn skorkortin mislas töluna 5 sem töluna 3 á fimmtu holu vallarins og Donald leyft að halda áfram keppni.

„Var að leggja á eftir spjall við Luke. Hann hefur ekki verið dæmdur úr leik," skrifaði Diane, eiginkona Donald, á Twitter-síðu sína.

Donald, sem vermir efsta sæti heimslistans, hefur enn ekki unnið risamót í golfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×