Golf

Mahan þokaði sér upp í fjórða sætið á heimslistanum

Bandaríski kylfingurinn Hunter Mahan.
Bandaríski kylfingurinn Hunter Mahan. AP
Bandaríski kylfingurinn Hunter Mahan þokaði sér upp í fjórða sætið á heimslistanum í golfi eftir sigurinn á Shell Houston meistaramótinu á PGA mótaröðinni í gærkvöld. Hinn 29 ára gamli Mahan er efstur á stigalistanum fyrir Fed-Ex úrslitakeppnina og hann fór upp um 10 sæti á heimslistanum með sigrinum í gær.

Tiger Woods er í sjöunda sæti heimslistans en sem fyrr eru það kylfingar frá Bretlandseyjum sem skipa þrjú efstu sætin. Luke Donald frá Englandi er efstur, Rory McIllroy frá Norður—Írlandi er annar og Lee Westwood frá Englandi er þriðji.

Staða 20 efstu á heimslistanum:

1. Luke Donald, England 9.70 stig

2. Rory McIlroy, Norður-Írland 9.59 stig

3. Lee Westwood,England 7.76 stig

4. Hunter Mahan, Bandaríkin 5.75 stig

5. Steve Stricker, Bandaríkin 5.67 stig

6. Martin Kaymer, Þýskaland 5.64 stig

7. Tiger Woods, Bandaríkin 5.53 stig

8. Charl Schwartzel, Suður-Afríka 5.09 stig

9. Justin Rose, England5.06 stig

10. Webb Simpson, Bandaríkin 5.03 stig

11. Jason Day, Ástralía 4.97 stig

12. Dustin Johnson, Bandaríkin 4.92 stig

13. Adam Scott, Ástralía 4.87 stig

14. Phil Mickelson, Bandaríkin 4.82 stig

15. Graeme McDowell, Norður-Írland 4.80 stig

16. Bubba Watson, Bandaríkin 4.56 stig

17. Bill Haas, Bandaríkin 4.51 stig

18. Matt Kuchar, Bandaríkin 4.46 stig

19. Keegan Bradley, Bandaríkin 4.29 stig

20. Nick Watney, Bandaríkin 4.18 stig

Mastersmótið í golf hefst á fimmtudaginn og þar verða allir þeir bestu á meðal keppenda. Mastersmótið er fyrsta stórmót ársins en alls eru stórmótin fjögur. Mastersmótið, Opna bandaríska meistaramótið, Opna breska meistaramótið og PGA meistaramótið.

Sýnt verður frá Mastersmótinu á Stöð 2 sport og verða allir keppnisdagarnir í beinni útsendingu. Einnig verður sýnt frá par 3 holu mótinu sem hefst á miðvikudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×