Messi jafnaði met Ronaldo í sigri Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. apríl 2012 00:11 Nordic Photos / Getty Images
Lionel Messi skoraði bæði mörk Barcelona í 2-1 sigri á Levante í spænsku úrvalsdeildinn í kvöld. Levante komst reyndar yfir í leiknum þegar að Barkero skoraði úr vítaspyrnu á 23. mínútu leiksins. Markið kom gegn gangi leiksins en vítið var dæmt eftir að Sergio Busquets tók boltann með höndinni í teignum. Þrátt fyrir að Barcelona hafi verið mun meira með boltann fékk Levante frábært færi til að komast tveimur mörkum yfir undir lok hálfleiksins Petro Lopez fór illa með gott færi. Messi jafnaði svo metin um miðbik síðari hálfleiksins með marki eftir laglegan samleik við Alexis. Sigurmarkið kom svo úr umdeildri vítaspyrnu sem var dæmt þegar að þeir Isaac Cuenca og Pedro Botelho lentu saman í teignum. Aðstoðardómari leiksins taldi að brotið hefði verið á Cuenca og því vítaspyrna dæmd. Messi skoraði örugglega úr vítinu og tryggði Barcelona sigurinn. Messi hefur nú skorað í tíu deildarleikjum í röð sem er metjöfnun í spænsku úrvalsdeildinni. Hann deilir nú metinu með Brasilíumanninum Ronaldo sem náði þessum áfanga með Barcelona tímabilið 1996-7. Hann hefur nú skorað 41 deildarmark í vetur, jafn mörg og Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid. Madrídingar eru þó með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar eftir leiki kvöldsins.
Spænski boltinn Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Sjá meira