Golf

Eimskipsmótaröðin: Birgir Leifur sigraði eftir harða baráttu

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. seth
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG sigraði á fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi með glæsilegum lokahring. Birgir lék Hólmsvöllinn í Leiru á 68 höggum í dag eða fjórum höggum undir pari. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék reyndar betur en Birgir í dag en Guðmundur var nálægt því að jafna vallarmetið. Guðmundur lék á 66 höggum í dag eða 6 höggum undir pari og endaði hann í öðru sæti á -2 samtals. Hlynur Geir Hjartarson varð þriðji á 2 höggum yfir pari vallar samtals.

Birgir Leifur var ekki í neinum vandræðum á hringnum í dag – en hann fékk alls fimm fugla eftir að hafa fengið skolla á 4. braut. Birgir fékk fugla á 8., 9., 14., 15., og 17.

„Ég hefði viljað endað daginn á fugli en þetta var bara skemmtilegt. Alltaf gaman að vinna. Ég var ekki í neinum vandræðum. Konan mín lét mig vita hvernig staðan var þegar ég var á 16. teig. Þá vissi ég að Guðmundur Ágúst var að „sulla“ niður púttum og búinn að fá þrjá fugla í röð. Ég fékk fugl á 17. og það var því frekar lítil pressa á mér fyrir lokaholuna,“  sagði Birgir Leifur Hafþórsson.

Atvinnukylfingurinn ætlar að einbeita sér að mótum erlendis í sumar á áskorendamótaröðinni. „Ég mun spila á Eimskipsmótaröðinni ef færi gefst til þess að gera það,“ bætti Birgir við.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×