Golf

Berglind á eitt högg á Guðrúnu Brá fyrir lokadaginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Berglind Björnsdóttir
Berglind Björnsdóttir Mynd/Golfsamband Íslands/Stefán
Berglind Björnsdóttir úr GR er með eins högg forskot fyrir lokahringinn á Egils Gull mótinu í Vestmannaeyjum en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni. Berglind hefur leikið fyrstu 36 holurnar á 149 höggum eða 9 höggum yfir pari.

Berglind bætti sig um átta högg á milli hringa og lék best allra á öðrum hring þar sem hún kom inn á einu höggi yfir pari eftir að hafa tapað átta höggum á fyrsta hringnum. Berglind náði meðal annars erni á fimmtu holu þar sem hún lék holuna á aðeins tveimur höggum.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GR er í öðru sæti, höggi á eftir Berglindi, en hún lék báða hringina í dag á fimm höggum yfir pari. Guðrún Brá var jöfn Signýju Arnórsdóttur eftir fyrsta hringinn en Signý er nú í 3. til 4. sæti ásamt Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur, þremur höggum frá öðru sætinu.

Guðrún Brá lék fyrstu fimm holurnar á öðrum hringnum á tveimur höggum undir pari og var komin niður í þrjú högg yfir pari en tapaði síðan sjö höggum á síðustu tólf holunum.

Staðan fyrir lokahringinn í kvennaflokki á Egils Gull mótinu:

1. Berglind Björnsdóttir, GR +9

2. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK +10

3. Signý Arnórsdóttir, GK +13

3. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR +13

4. Ragna Björk Ólafsdóttir, GKG +15

5. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO +15

5. Sunna Víðisdóttir, GR +15

8. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG +16

9. Tinna Jóhannsdóttir, GK +17

10. Guðrún Pétursdóttir, GR +20




Fleiri fréttir

Sjá meira


×