Golf

Birgir Leifur um miðjan hóp

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valur Jónatansson
Birgir Leifur Hafþórsson lék á pari á fyrsta keppnisdegi móts í Áskorendamótaröð Evrópu sem fer nú fram í Kärnten í Austurríki.

Birgir Leifur er í 82.-99. sæti af 156 keppendum og ljóst að hann þarf að spila betur á morgun til að komast í gegnum niðurskurðinn.

Hann fékk þrjá fugla og þrjá skolla í dag og paraði svo tólf holur. Hann lék betur á seinni níu og var þá á einu höggi undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×