Golf

Stefán Már og Þórður Rafn spiluðu þriðja hring á tveimur undir pari

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórður Rafn spilaði vel í dag.
Þórður Rafn spilaði vel í dag. Mynd / grgolf.is
Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er í 24. sæti að loknum þremur hringjum á Land Fleesensee Classic-mótinu í Þýskalandi.

Þórður Rafn lék hringinn í dag á tveimur undir pari og er á tveimur undir samanlagt. Nokkuð langt er í efstu menn en Sebastian Heisele var samanlagt á sextán undir pari þegar einni holu var ólokið á þriðja hring.

Stefán Már Stefánsson, einnig úr GR, spilaði hringinn í dag einnig á tveimur undir pari. Hann er í 36. sæti á einu höggi yfir pari samanlagt.


Tengdar fréttir

Stefán Már og Þórður Rafn í gegnum niðurskurðinn

Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, eru komnir í gegnum niðurskurðinn á Land Fleesensee Classic-mótinu í Þýskalandi. Þetta kemur fram á kylfingur.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×