Golf

Golfdagurinn haldinn hátíðlegur á morgun

Í tilefni af Ólympíuviku ÍSÍ mun Golfsamband Íslands, í samstarfi við golfklúbba vítt og breitt um landið, standa að Golfdeginum sem verður haldinn miðvikudaginn 20. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sambandinu.

„Keppt verður í golfi á Ólympíuleikunum í Ríó í Brasilíu árið 2016 í fyrsta sinn frá árinu 1904. Af þessu tilefni stendur GSÍ í samstarfi við ÍSÍ fyrir Golfdeginum til að kynna Íslendingum fyrir golfi sem Ólympíuíþrótt.

Á Golfdeginum mun fjöldi golfklúbba vítt og breitt um landið taka á móti börnum og unglingum og kynna þeim fyrir golfíþróttinni sem nýtur mikilla vinsælda hér á landi. Opið verður milli 16-19 á æfingasvæði golfklúbba um allt land þar sem börnum og unglingum verður kynnt íþróttin og kennd undirstöðuatriðin. Áhugasömum er bent á að kynna sér golfklúbba í sínu nágreni.

Nýverið stofnaði GSÍ afrekssjóðinn Forskot í samstarfi við fyrirtækin Icelandair, Valitor, Íslandsbanka, og Eimskip með það að markmiði að koma íslenskum kylfingum inn á Ólympíuleikana árið 2016. Markið er sett hátt en ef marka má þann uppgang sem orðið hefur í íslensku golfi á undanförnum árum þá er stutt í það að Íslendingar eignist kylfinga í fremstu röð.

Golf er í dag næstvinsælasta íþrótt landsins og eru um 17 þúsund manns félagar í golfklúbbi hér á landi. Stöðug fjölgun hefur verið meðal íslenskra kylfinga á undanförnum árum og er golfíþróttin líklega hvergi eins vinsæl og hér á Íslandi. Það er aldrei að vita nema að næsta Ólympíustjarna Íslands kynni sér golfíþróttina á Golfdeginum," að því er segir í fréttatilkynningu frá GSÍ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×