Golf

Westwood flytur til Bandaríkjamanna

Westwood með Tiger.
Westwood með Tiger.
Englendingurinn Lee Westwood hefur ákveðið að flytja til Bandaríkjanna. Hann telur að það muni hjálpa honum að vinna risatitil.

Hinn 39 ára gamli Westwood varð í tíunda sæti á US Open en það var 57. risamótið sem hann tekur þátt í. Westwood viðurkennir að veðurfarið á Englandi eigi einnig þátt í flutningunum.

"Veðrið á Englandi gerir það að verkum að það er ekki hægt að æfa eins mikið óg í Bandaríkjunum. Það eru margar ástæður fyrir þessari ákvörðun og ein þeirra er sú að ég á ekki það mörg ár eftir á toppnum og ég vil gefa sjálfum mér þann möguleika að geta verið þar sem lengst," sagði Westwood sem er í þriðja sæti heimslistans.

Þó svo Westwood flytji yfir hafið ætlar hann samt enn að taka þátt á Evrópumótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×