Golf

Fuglamaður truflaði verðlaunaafhendingu US Open

Athyglissjúkur einstaklingur stal senunni í verðlaunaafhendingu US Open í nótt. Hann ruddist niður úr stúkunni, tók sér stöðu fyrir framan myndavélarnar og fór að mynda fuglahljóð. Þræleðlilegt alveg.

Einn af yfirmönnum PGA-mótaraðarinnar náði taki á manninum og hélt honum þar til öryggisverðir komu á svæðið.

Sigurvegarinn Webb Simpson lét atvikið ekki koma sér úr jafnvægi en hann var þá í miðju sjónvarpsviðtali. Hann kallaði eftir manninum: "Njóttu fangelsisklefans," og hló svo dátt.

Þessa stórkostlegu uppákoma má sjá í myndbandinu hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×