Golf

McDowell og Furyk efstir | Woods lék af sér á þriðja hringnum

Jim Furyk er efstur fyrir lokadaginn á opna bandariska meistaramótinu ásamt Graeme McDowell frá Norður-Írlandi
Jim Furyk er efstur fyrir lokadaginn á opna bandariska meistaramótinu ásamt Graeme McDowell frá Norður-Írlandi AP
Graeme McDowell frá Norður-Írlandi og Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk, sem báðir hafa sigrað á opna bandaríska meistaramótinu, eru einu kylfingarnir sem eru undir pari fyrir lokahringinn á opna bandaríska meistaramótinu sem fram fer í dag. Þeir eru báðir á einu höggi undir pari samtals. Tiger Woods náði sér alls ekki á strik á þriðja hringnum og lék hann á 75 höggum eða 5 höggum yfir pari á hinum gríðarlega erfiða Olympic Club golfvelli.

McDowell sýndi mikla keppnishörku en hann sigraði á sínu fyrsta stórmóti fyrir tveimur árum þegar hann stóð uppi sem sigurvegari á opna bandaríska meistaramótinu á Pebble Beach. Hann lék á 68 höggum eða 2 höggum undir pari. „Þetta er í fyrsta sinn í þessari viku sem ég nýt þess að spila golf," sagði McDowell eftir hringinn í gær.

Furyk er eini kylfingurinn í keppninni sem hefur enn ekki leikið hring yfir pari vallar en hann er á 139 höggum líkt og McDowell.

„Að sjálfsögðu líkar mér að vera í þessari stöðu, þessi golfvöllur er gríðarleg áskorun, og þeir sem ná að halda einbeitingunni við þessar aðstæður geta komið sér í góða stöðu fyrir síðustu holurnar," sagði Furyk í gær.

Woods byrjaði daginn í efsta sæti mótsins ásamt Furyk. Woods fékk skolla á fyrstu braut og aftur á þeirri þriðju. Hann náði aldrei að vinna þau högg til baka á þeim holum þar sem kylfingarnir geta sótt fugla. Hann lék á 75 höggum og aðeins 8 kylfingar léku á verra skori en Woods.

„Ég verð bara að leika vel á lokahringnum og sjá hvað gerist," sagði Woods í gær en hann hefur sigrað á 14 stórmótum á ferlinum en aðeins Jack Nicklaus hefur sigrað á fleiri stórmótum – alls 18.

McDowell og Furyk eru með tveggja högga forskot á Svíann Fredrik Jacobson sem er á einu höggi yfir pari samtals eftir að hafa leikið á 68 í gær. Englendingurinn Lee Westwood lék besta allra í gær eða á 67 höggum, 3 höggum undir pari. Hann er þremur höggum á eftir efstu mönnum og á því enn möguleika á að landa sínum fyrsta sigri á stórmóti.

Suður-Afríkumaðurinn Ernie Els er á sama skori og Westwood. Els hefur tvívegis sigrað á opna bandaríska meistaramótinu og fyrsti sigur hans var fyrir 18 árum síðan. „Reynslan hjálpar manni á þessum velli, og af einhverjum ástæðum er ég þolinmóður á ný. Það hefur reynst mér vel á stórmótum og ég mun halda áfram að vera þolinmóður á lokadeginum," sagði Els.

Graeme McDowell 69-72-68—209 -1

Jim Furyk 70-69-70—209 -1

Fredrik Jacobson 72-71-68—211 +1

Lee Westwood 73-72-67—212 +2

Ernie Els 75-69-68—212 +2

Blake Adams 72-70-70—212 +2

Nicholas Colsaerts 72-69-71—212 +2

Webb Simpson 72-73-68—213 +3

Kevin Chappell 74-71-68—213 +3

John Senden 72-73-68—213 +3

a-Beau Hossler 70-73-70—213 +3

Jason Dufner 72-71-70—213 +3

John Peterson 71-70-72—213 +3

Retief Goosen 75-70-69—214 +4

Martin Kaymer 74-71-69—214 +4

Matt Kuchar 70-73-71—214 +4

Tiger Woods 69-70-75—214 +4

Casey Wittenberg 71-77-67—215 +5

a-Hunter Hamrick 77-67-71—215 +5

Padraig Harrington 74-70-71—215 +5

Justin Rose 69-75-71—215 +5

Sergio Garcia 73-71-71—215 +5

Charlie Wi 74-70-71—215 +5

Aaron Watkins 72-71-72—215 +5

Michael Thompson 66-75-74—215 +5

David Toms 69-70-76—215 +5

Adam Scott 76-70-70—216 +6

Scott Langley 76-70-70—216 +6

Kevin Na 74-71-71—216 +6

Raphael Jacquelin 72-71-73—216 +6

Hunter Mahan 72-71-73—216 +6

Steve LeBrun 73-75-69—217 +7

Angel Cabrera 72-76-69—217 +7

a-Jordan Spieth 74-74-69—217 +7

Alex Cejka 78-69-70—217 +7

Jonathan Byrd 71-75-71—217 +7

Robert Karlsson 70-75-72—217 +7

Steve Stricker 76-68-73—217 +7

Nick Watney 69-75-73—217 +7

K.J. Choi 73-70-74—217 +7

Charl Schwartzel 73-70-74—217 +7

Bob Estes 74-73-71—218 +8

Phil Mickelson 76-71-71—218 +8

Branden Grace 71-74-73—218 +8

Matteo Manassero 76-69-73—218 +8

Ian Poulter 70-75-73—218 +8

a-Patrick Cantlay 76-72-71—219 +9

Rickie Fowler 72-76-71—219 +9

Jeff Curl 73-75-71—219 +9

Francesco Molinari 71-76-72—219 +9

Hiroyuki Fujita 75-71-73—219 +9

Darron Stiles 75-71-73—219 +9

Morgan Hoffmann 72-74-73—219 +9

Marc Warren 73-72-74—219 +9

Alistair Presnell 70-74-75—219 +9

Kevin Streelman 76-72-72—220 +10

Nicholas Thompson 74-74-72—220 +10

Davis Love III 73-74-73—220 +10

Zach Johnson 77-70-73—220 +10

K.T. Kim 74-72-74—220 +10

Matthew Baldwin 74-74-73—221 +11

Rod Pampling 74-73-74—221 +11

Keegan Bradley 73-73-75—221 +11

Michael Allen 71-73-77—221 +11

Jae-Bum Park 70-74-77—221 +11

Jesse Mueller 75-73-74—222 +12

Simon Dyson 74-74-74—222 +12

Jason Day 75-71-76—222 +12

Jason Bohn 70-75-78—223 +13

Bo Van Pelt 78-70-76—224 +14

Joe Ogilvie 73-75-76—224 +14

Stephen Ames 74-73-79—226 +16




Fleiri fréttir

Sjá meira


×