Golf

Tiger efstur eftir annan dag

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Tiger Woods einbeittur í sandinum
Tiger Woods einbeittur í sandinum MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY
Tiger Woods deilir efsta sætinu á US Open eftir tvo keppnisdaga með David Toms og Jim Furyk á einu höggi undir pari. Woods og Toms léku á pari á öðrum keppnisdegi en Furyk var einn aðeins sjö kylfinga sem léku undir pari vallarins í gær.

Keppt er á Olympic Club´s Lake-vellinum í San Francisco sem þykir afar erfiður og hefur valdið mörgum af bestu kylfingum heims miklum vandræðum. Phil Mickelson og Rickie Fowler rétt sluppu í gegnum niðurskurðinn svo dæmi sé tekið.

Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurðinn er efsti maður heimslistans Luke Donald. Hann lék á níu höggum yfir pari á fyrsta keppnisdegi og þurfti að leika undir pari til að komast áfram. Það gekk ekki því hann lék annan daginn á einu yfir pari og er því úr leik líkt og Norður-Írinn Rory McIlroy, Bubba Watson og Daninn Thomas Björn.

Táningurinn Andy Zhang sem er aðeins fjórtán ára gamall lék alls á 16 yfir pari en aðeins þeir kylfingar sem léku á átta höggum yfir pari eða betur komust áfram í gegnum niðurskurðinn.

Tiger Woods þykir vera farinn að nálgast sitt besta form og munar mest um að takturinn í sveiflu hans er mun betri en hann hefur verið um árabil. Tiger hefur níu sinnum verið í efsta sæti eftir annan keppnisdag á stórmóti og átta þeirra móta sigraði hann.

Woods á þó ekki sigurinn vísan því hann þarf að keppa við tvo kylfinga sem hafa reynslu af því að sigra stórmót auk þess sem þeir Toms og Furyk þykja mjög góðir á erfiðum vellinum.

Furyk er mjög leikreyndur og vann US Open 2003. Toms slær að jafnaði mjög beint og lendir því sjaldan í vandræðum en hann vann PGA meistaramótið 2001.

Norður-Írinn Graeme McDowell, sem sigraði US Open 2010, er aðeins tveimur höggum á eftir Toms, Furyk og Tiger ásamt John Peterson, Rúmenanum Nicholas Colsaerts og Michael Thompson sem var efstur eftir fyrsta keppnisdag en hann lék fimm yfir pari á öðrum keppnisdegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×