Golf

Táningurinn á sama skori og efsti maður heimslistans

Zhang er í kastljósi fjölmiðla á US Open.
Zhang er í kastljósi fjölmiðla á US Open.
Yngsti keppandinn í sögu US Open, hinn 14 ára gamli Andy Zhang, stóð sig vel á fyrsta hring mótsins í gær og kom í hús á 79 höggum á hinum afar erfiða velli í San Francisco.

Margir af bestu kylfingum heims lentu í stórkostlegum vandræðum í gær. Phil Mickelson var á 76 höggum, Bubba Watson 78 og efsti maður heimslistans, Luke Donald, var á sama skori og táningurinn. Hann getur því ekki kvartað.

"Völlurinn var rosalega erfiður þannig að ég er sáttur við mitt skor," sagði Zhang sem byrjaði illa. Fékk þrefaldan skolla á fyrstu holu, svo tvöfaldan skolla og skolla á næstu þrem holum eftir það.

"Þegar ég stóð á fyrsta teig þá gat ég ekki hugsað um annað en að ég mætti ekki "slæsa" boltann langt út fyrir. Ég titraði eiginlega af stressi en náði samt góðu höggi.

"Eftir erfiða byrjun jafnaði ég mig og náði að halda mér rólegum. Ég er mjög ánægður og mikill heiður að fá að vera með."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×