Golf

Tinna: "Ég var búin með allt í buddunni“

„Áður en þessi dagur kom þá var ég búin með allt í buddunni. Stofnun afrekssjóðsins hefur mikla þýðingu fyrir okkur, þetta gefur okkur ákveðið frelsi og við þurfum ekki alltaf að vera með áhyggjur af peningum á meðan við erum að æfa og keppa," sagði atvinnukylfingurinn Tinna Jóhannsdóttir úr Keili við Vísi í dag þegar greint var frá stofnun nýs afrekssjóðs hjá Golfsambandi Íslands.

Auk GSÍ eru stofnendur sjóðsins Eimskip, Valitor, Íslandsbanki og Icelandair Group en 15 milljónir verða veittar til fimm íslenskra afrekskylfinga árið 2012 og er Tinna eina konan í hópnum. „Ég er stolt af því að vera eina konan og vona þetta verði hvatning fyrir hinar stelpurnar sem eru kannski að hugsa um að fara þessa leið," sagði Tinna m.a. í viðtali við Kolbein Tuma Daðason í dag.

Viðtalið í heild sinni má sjá með því að smella á hnappinn hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×