Golf

Hlynur Geir: Besta golfhögg sumarsins

Sigurður Elvar Þórólfsson á Leirdalsvelli skrifar
Hlynur Geir að pútta í Kópavoginum.
Hlynur Geir að pútta í Kópavoginum.
„Birgir Leifur hefur alltaf rúllað mér upp í holukeppni fram til þessa og einnig í sveitakeppninni þegar við höfum mæst. Þetta er stór áfangi fyrir mig að vinna langbesta kylfing Íslands," sagði Hlynur Geir Hjartarson kylfingur úr Golfklúbbi Selfoss eftir að hann lagði Birgi Leif Hafþórsson úr GKG í undanúrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer á Leirdalsvelli, heimavelli GKG.

Hlynur mætir Haraldi Franklín Magnús úr GR í úrslitum en hann lagði Rúnar Arnórsson úr Keili, 2/1, í undanúrslitum í morgun.

Leikur Hlyns og Birgis var gríðarlega spennandi og réðust úrslitin á 18. flöt þar sem Hlynur sló frábært innáhögg úr gríðarlega erfiðri aðstöðu.

„Ég valdi 6-járnið en var að velta fyrir mér að slá með 5-járninu. Ég miðaði 25 metra hægra meginn við flötina og boltinn fór í góðum sveig til vinstri að holu eins og ég hafði ætlað að slá. Besta golfhögg sumarsins – ekki spurning. Við vorum báðir að spila vel í dag, og þetta var hörkuleikur og gríðarleg spenna," sagði Hlynur Geir Hjartarson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×