Golf

Undanúrslit karla og kvenna | Birgir Leifur og Hlynur Geir mætast

Birgir Leifur þarf að glíma við Selfyssinginn smáa en knáa, Hlyn Geir Hjartarson, í fyrramálið.
Birgir Leifur þarf að glíma við Selfyssinginn smáa en knáa, Hlyn Geir Hjartarson, í fyrramálið.
Í kvöld lá fyrir hvaða keppendur mætast í undanúrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer rjómablíðu í Leirdalnum í Kópavogi.

Í karlaflokki mætast Hlynur Geir Hjartarson og Birgir Leifur Hafþórsson annars vegar og Rúnar Arnórsson og Haraldur Franklín Magnús hins vegar.

Hlynur og Birgir Leifur hefja leik klukkan 7.30 í fyrramálið og þeir Rúnar og Haraldur fara af stað átta mínútum síðar.

Í undanúrslitum kvenna mætast Tinna Jóhannsdóttir og Signý Arnórsdóttir í fyrri leiknum og þær Ingunn Gunnarsdóttir og Anna Sólveig Snorradóttir í þeim seinni. Tinna og Signý byrja klukkan 7.46 og þær Ingunn og Anna koma svo í humátt á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×