Kári Kristján í körfuboltaeinvígi í Vestmannaeyjum 22. júní 2012 11:45
Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Kári Kristján Kristjánsson, og körfuboltamaður Vestmannaeyja árið 2011, Daði Guðjónsson, mætast í miklu körfuboltaeinvígi í Eyjum í kvöld. Heimamenn kalla þetta einvígi ársins og er þetta í þriðja skiptið sem þeir félagar takast á. Bardaginn, sem líklega verður blóðugur, fer fram á körfuboltavellinum við barnaskólann og hefst klukkan 21.00. "Ástæðan fyrir því að þetta varð árlegt einvígi er sú að Látraprinsinn Daði vann mig fyrsta árið og varð í kjölfarið gjörsamlega óþolandi. Það kom því aldrei annað til greina en að hefna. Það var líka gert með stæl í fyrra," sagði Kári Kristján kokhraustur en hann og Daði eru fínir félagar og báðir meðlimir í félagsskapnum "Vinir Ketils bónda." "Hann átti ekki möguleika í mig í fyrra en var samt valinn besti körfuboltamaður Vestmannaeyja. Ég skil ekki enn af hverju ég var ekki valinn sá besti? Það var mikill skandall," sagði Kári ekki sáttur en hann er vel stemmdur fyrir bardagann engu að síður og á von á góðri mætingu. "Planið hjá Eyjamönnum í kvöld er einfalt. Það er grill, EM og svo einvígið. Það steinliggur. Það verður enginn svikinn af því að sjá mig legga Látraprinsinn á nýjan leik." Auglýsingamyndband fyrir einvígið má sjá hér að ofan.
Olís-deild karla Mest lesið Fyrirliði Bandaríkjanna ver gjammandi stuðningsmennina Golf Uppgjörið: Vestri - ÍBV 0-5 | Enn syrtir í álinn hjá Vestra Íslenski boltinn Uppgjörið: Afturelding - KA 3-2 | Heimamenn sluppu með sigurinn Íslenski boltinn Grínisti hættir og biðst afsökunar á að hafa byrjað níðsöngva í garð Rory Golf „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Enski boltinn Dramatík í uppbótartímanum Enski boltinn „Strætó númer 15 stoppar beint fyrir utan KR-völlinn“ Fótbolti Sagði áhorfanda að naglhalda kjafti Golf Nik hættir með Breiðablik og tekur við Kristianstad Íslenski boltinn Í beinni: Fram - Valur | Valsmenn geta sett pressu á Víkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sjá meira