LeBron: Besta sem gat komið fyrir mig var að tapa titlinum í fyrra 22. júní 2012 09:36 LeBron fagnar ógurlega í nótt. "
Þessi titill skiptir öllu. Þetta er hamingjusamasti dagur lífs míns," sagði LeBron James eftir að hann vann sinn fyrsta NBA-titil í nótt. Hann losnaði um leið við mikla pressu en margir efuðust um að honum myndi takast að vinna titil. Þó svo James hafi flutt sig yfir frá Cleveland til Miami í miklu betra lið kom titillinn ekki án fyrirhafnar. Liðið tapaði í úrslitum í fyrra og lenti í vandræðum í úrslitakeppninni í ár. Í sjálfum úrslitunum var aldrei spurning hvernig færi. "Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert síðan ég tók upp körfubolta níu ára gamall. Þetta sýnir og sannar hvað hægt er að afreka ef maður leggur allt í sölurnar. Þá uppsker maður." Það vakti mikla reiði margra hvernig James stóð að vistaskiptum sínum til Miami og hann varð í kjölfarið einn óvinsælasti íþróttamaður Bandaríkjanna. "Í fyrra var ég að reyna að þagga niður í fólki. Fólk var að segja að ég væri sjálfselskur og það fór í taugarnar á mér. Það virkilega fór í taugarnar á mér því þetta er liðsíþrótt. Ég var að reyna að sanna fyrir fólki allan síðasta vetur að það hefði rangt fyrir sér. Ég var í raun að berjast við sjálfan mig. "Það besta sem gat komið fyrir mig var að tapa í úrslitunum í fyrra og að ég skildi hafa spilað eins og ég spilaði. Það var það besta sem hefur komið fyrir mig á ferlinum því í kjölfarið leitaði ég aftur í grunnstoðirnar. Ég varð auðmjúkur. Ég vissi að ég yrði að breyta mér sem körfuboltamaður og persóna. Ári seinna uppsker ég ríkulega."
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira