Golf

Íslandsmótið í holukeppni hefst á morgun

Ólafía Þórunn.
Ólafía Þórunn.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Arnór Ingi Finnbjörnsson, einnig úr GR, hafa titla að verja á Íslandsmótinu í holukeppni sem hefst á morgun. Að þessu sinni verður leikið á Leirdalsvelli, heimavelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Alls eru 32 karlar skráðir til leiks og 15 konur.

Atvinnukylfingarnir Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG og Þórður Rafn Gissurarson úr GR eru á meðal keppenda en þeir léku til úrslita á þessu móti árið 2010 þar sem Birgir hafði betur. Kristján Þór Einarsson úr Keili, sem féll úr keppni á opna breska áhugamannameistaramótinu í gær, verður mættur til leiks á föstudaginn.

Keppnisfyrirkomulagið á Íslandsmótinu í holukeppni, sem haldið er í samvinnu við Íslensku lögmannsstofuna og er jafnframt þriðja stigamót ársins á Eimskipsmótaröðinni, er með eftirfarandi hætti.

Fjórir kylfingar skipa hvern riðil og leika allir við alla, og eru riðlarnir alls átta.

Sá sem fær flesta vinninga í riðlakeppninni kemst áfram í 16 manna úrslit. Í 16-manna úrslitum fellur sá sem tapar leiknum úr keppni og sami háttur er í 8-manna úrslitum. Þeir sem tapa í undanúrslitum mótsins leika um 3. sætið og sigurvegararnir leika um Íslandsmeistaratitilinn.

Í kvennaflokknum komast fjórir efstu kylfingarnir í undanúrslit að lokinni riðlakeppninni.

Riðlarnir í karlaflokknum eru þannig skipaðir:

1. riðill:

Hlynur Geir Hjartarson, GOS

Magnús Lárusson, GKj.

Arnar Snær Hákonarson, GR

Árni Páll Hansson, GR

2. riðill:

Þórður Rafn Gissurarson, GR

Axel Bóasson, GK

Kristján Þór Einarsson, GK

Tryggvi Pétursson, GSE

3. riðill:

Andri Þór Björnsson, GR

Ólafur Már Sigurðsson, GR

Pétur Freyr Pétursson, GR

Birgir Guðjónsson, GR

4. riðill:

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG

Andri Már Óskarsson, GHR

Gísli Þór Þórðarson, GR

Halldór Heiðar Halldórsson, GKB

5. riðill:

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR

Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG

Dagur Ebenezersson, GK

Stefán Már Stefánsson, GR

6. riðill:

Haraldur Franklín Magnús, GR

Ísak Jasonarson, GK

Kjartan Dór Kjartansson, GKG

Sigmundur Einar Másson, GKG

7. riðill:

Einar Haukur Óskarsson, GK

Rúnar Arnórsson, GK

Theodór Emil Karlsson, GKj.

Ragnar Már Garðarsson, GKG

8. riðill:

Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR

Guðjón Henning Hilmarsson, GKG

Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, GHD

Örvar Samúelsson, GA

Riðlarnir í kvennaflokknum eru þannig skipaðir en aðeins þrír keppendur eru í riðli 1.

1. riðill:

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR

Ingunn Einarsdóttir, GKG

Tinna Jóhannsdóttir, GK

2 riðill:

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK

Ingunn Gunnarsdóttir, GKG

Ragna Björk Ólafsdóttir, GR

Karen Guðnadóttir, GS

3. riðill:

Berglind Björnsdóttir, GR

Þórdís Geirsdóttir, GK

Anna Sólveig Snorradóttir, GK

Jódís Bóasdóttir, GK

4. riðill:

Signý Arnórsdóttir, GK

Sunna Víðisdóttir, GR

Heiða Guðnadóttir, GKj.

Hansína Þorkelsdóttir, GKG




Fleiri fréttir

Sjá meira


×